Montana ríður á vaðið og bannar skyldubólusetningu

frettinInnlendar1 Comment

Nú þegar ýmis stórfyrirtæki í Bandaríkjunum krefjast þess að starfsfólk sé bólusett við C-19, þá er eitt ríki, Montana, sem sker sig úr og bannar einfaldlega skyldubólusetningar. Þar voru nýlega sett lög sem segja að skyldubólusetning fyrir atvinnu sé mismunun (discrimination) og brot á mannréttindum ríkisins.

Íbúar Montana eru um ein milljón og þar hefur um helmingur fullorðinna verið bólusettur gegn C-19.

Þarna er líka komið annað dæmi sem sýnir að þessar bólusetningar með hinum skaðlegu og að því er virðist gagnlitlu lyfjum séu pólitískt fyrirbæri. Montana er stjórnað af repúblikönum og hafa hægri ríkin verið með mun lakari reglur en hin sem stjórnað er af demókrötum. Mér sýnist í fljótu bragði að öll þau ríki sem ekki eru með grímuskyldu séu hægri ríki.

maksstates
Texas aflétti t.d. öllum höftum í mars sl. Þetta er rannsóknarverkefni út af fyrir sig. Hvernig getur það staðist að veirufaraldur, og viðbrögð við honum, séu að einhverju leyti pólitísk?

Við sjáum þetta reyndar hér heima líka, vinstri flokkar (VG, Samfylking, Sósíalistar) eru ólmir í að fá í sig gervibóluefni og sprauta því í börnin sem eru ekki í hættu vegna pestarinnar. Er þetta fólk almennt hræddara um líf sitt eða fílar það bara að hlýða og láta aðra hlýða, sama hversu vitlaust málefnið er. Samfélagsleg ábyrgð? Nei, ekki með þetta efni sem búið er að sýna fram á að ekki komi í veg fyrir smit, veikindi, eða dauða. En samt rígheldur það í málefnið.

Vitað er til þess að a.m.k. einn skólastjóri framhaldsskóla, Fjölbraut í Garðabæ, hafi sent út hvatningarbréf til nemenda skólans um að fara í C-19 bólusetningu. Hann var bara að hlýða Víði (skilst að hann sé tengdur „samfó“.) Síðan er það samfylkingarborgin Reykjavík sem er að skoða hvort ekki eigi að skylda í einhverjum tilfellum starfsfólk til að fara í C-19 lyfjagjöf, aðallega þá sem vinna með gamla fólkinu sem núna er þríbólusett með „bóluefninu.“ Hér er graf sem vinstri menn geta skoðað. Línan hægra megin er hjarðónæmið sem þjóðinni var lofað eða þannig.

p.s. kannski ekki spurning um hægri/vinstri eins og við þekkjum það, heldur þetta með að ráðskast með fólk og skikka það til gera eitthvað sem það hefur ekki áhuga á.

Heimild: https://thordisb.blog.is/blog/thordisb/entry/2268743/

 

One Comment on “Montana ríður á vaðið og bannar skyldubólusetningu”

Skildu eftir skilaboð