Trump sýnt banatilræði á kosningafundi í Pennsylvaníuríki

frettinErlent6 Comments

Donald Trump fv. Bandaríkjaforseta var sýnt banatilræði á kosn­inga­fundi hans í Penn­sylvan­íu nú fyrir stundu. Blóð rann niður kinn for­setafram­bjóðand­ans og virðist skot hafa hæft hann í eyrað, en hann var tek­inn til skoðunar á sjúkra­húsi og virðist hafa lifað banatilræðið af.

Trump henti sér í jörðina á meðan leyniþjón­ustumenn um­kringdu hann. Sviðið var síðan um­kringt vopnuðum sér­sveit­ar­mönn­um. Lá hann á jörðinni í um það bil eina mín­útu.

Þrátt fyrir þetta sagði Trump við leyniþjónustuna: „bíðið, bíðið“ áður en hann stakk baráttuhnefanum upp í loftið og fékk gríðarlegt lófaklapp frá stuðningsmönnum.

Atvikið sem hefur vakið mikinn óhug hefur verið deilt víða á samskiptamiðlum og má sjá hér neðar:



6 Comments on “Trump sýnt banatilræði á kosningafundi í Pennsylvaníuríki”

  1. Ég er ekki hyssa á þessu!

    Miðað við allt hatrið sem er búið að byggja upp í kringum Trump af vestrænum stjórnvöldum og áróðursmiðlum þá hlaut að koma að þessu.

    Ef Ísland væri með sömu byssu löggjöf og Bandaríkin þá væri sennilega mun meiri morðtíðni hér enn í Bandaríkjunum sökun áróðurs spillingar og heimsku.

  2. Það þurfti ekki spámann til að sjá þetta fyrir, fjölmiðlar ala á hatri á manninum. Bara í þessari viku sagði lét Heimir Már í fréttatíma á Stöð 2 þvílík hatursfull ummæli falla um Donald Trump að manni blöskraði. En þetta er það sem fjölmiðlar ala á í þjóðarvitund í USA og víðs vegar um heim, m.a. á Íslandi. Svo er það að furða að Donald Trump var sýnt banatilræði? Nei. Það er búið að ala fólk á hatri á manninum að ósekju um áraraðir í fjölmiðlum.

  3. Og hverjir eru það sem japla mest og hneykslast helst á „hatursorðræðu“?

    Figures.

  4. „Trump er kolvitlaus hálfviti, kynferðisbrotamaður, margsannaður lygari, kennitöluflakkari, ruddi, klínískur sikkópati, narsisisti og landráðamaður.“
    — Heimir Már Pétursson (júlí, 2024)

    Svona ummæli frá fréttamanni eru ekki boðleg. Burt með Heimi Má úr fréttamennsku. Hann er til skammar og ætti að segja starfi sínu lausu strax.

  5. Heimir Már gerir nækvæmlega það sama og samstarfsmenn hans hjá 365 miðlum, Kristján „skítadrifari“ Kristjánsson á DV og Samúel „Sófakartafla“ Ólason á Vísi til að halda starfi sínu og það er að dreifa áróðri í þágu vesturveldana
    Þessir aðilar eru siðblindir og enginn læknar siðblindu þessara manna, þeir eru með ólæknandi rússafóbíu og mynda sínar skoðanir og fantasíur á Hollywood myndaglápi.

Skildu eftir skilaboð