Orsakasambandið geirneglt af þýskri nákvæmni

frettinInnlendarLeave a Comment

Þorgeir Eyjólfsson skrifar:

Það er að bera í bakkafullan lækinn að kynna til sögunnar enn eina rannsóknina sem leiðir sterkar líkur að orsakasambandi covid bólusetninganna og fjölgunar dauðsfalla.

Niðurstöður þýskrar rannsóknar, sem enn hefur ekki gefist tóm til að ritrýna, á áhrifum Covid-19 á dauðsföll í 16 sambandsríkjum yfir þriggja ára tímabil bætist í ört stækkandi hóp rannsókna sem leiða sterkar líkur að orsakasambandi Covid bólusetninganna og fjölgunar dauðsfalla.

Mantran um að fylgni sé ekki sama og orsök á ekki lengur við þegar fjallað er um mRNA efnin og umframdauðsföllin. Svo margar eru rannsóknirnar orðnar hverra niðurstöður leiða sterkar líkur að orsakasambandi.

Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

Skildu eftir skilaboð