Viðbjóðsleg árás var gerð á barnaskemmtun í bænum Southport á Englandi og í það minnsta tvö börn hafa verið stungin til bana en í það minnsta sex önnur eru mjög illa særð.
Tvær fullorðnar manneskjur eru einnig alvarlega slasaðar en þær reyndu að verja börnin á svæðinu en hlutu ljóta áverka fyrir hetjudáð sína.
Lögreglan segir að ekki sé verið að rannsaka málið sem hryðjuverk og búið er að handtaka aðila sem sagður er 17 ára gamall en fjölmiðlamaðurinn David Atherton greinir frá að hinn grunaði sé Palestínumaður sem einnig hefur jórdanskar ættir.
Atherton greinir frá því að hann hafi séð nafn hins grunaða hjá heimildarmanni sínum og að hann sé hælisleitandi sem hafi verið á lista bresku leyniþjónustunnar yfir hættulega einstaklinga.
Atherton segir einnig máli sinu til stuðnings að lögregla hafi ráðist inn í skólabyggingu í nágrenninu hafi en það sé notað til að hýsa flóttamenn og hælisleitendur.
🚨Breaking News🚨
In Old School Close in Southport, a property has been raided. It is believed to house illegal migrants.
In another part of the town a migrant stabbed numerous children at a holiday nursery. pic.twitter.com/vszXlFCaEC
— David Atherton (@DaveAtherton20) July 29, 2024
Samkvæmt annarri síðu er er nafn mannsins Ali-Al-Shakati og er sagt að hann hafi komið til Englands á gúmmíbát fyrir um ári síðan.
Allegedly and apparently he’s 17 years old and arrived here last year, if that’s correct we won’t be getting his name or details for a long time as “children” have anonymity!
“Southport Stabbings suspect, Ali-Al-Shakati, was on MI6 watch list and was known to Liverpool mental…— Deport Foreign Criminals (@peterstopcrime) July 29, 2024
6 Comments on “Í það minnsta tvö börn látin í hnífaárás á barnaskemmtun í Southport á Englandi – Árásarmaðurinn sagður innflytjandi”
Skammastu þín Magga fyrir að vera að dreifa kjaftasögum. Árásarmaðurinn var fæddur og uppalinn í Bretlandi.
„A 17-year-old boy, from the village of Banks in Lancashire and born in Cardiff, was later arrested on suspicion of murder and attempted murder in connection with the attack.“
https://www.theguardian.com/uk-news/live/2024/jul/30/southport-stabbing-latest-knife-attack-children-hospital-merseyside
Athugaðu að báðir þessir twitter notendur eru búnir að eyða þessum falsfréttapóstum, þú ættir að gera hið sama
Sannleikurinn er nú ekki að þvælast fyrir Möggu, snýst bara um að útbreiða hatur í anda falsguðsins sem hún dýrkar
Góðan dag það er [email protected] sem skrifar þessa frétt ekki Margrét, ykkur er velkomið að senda á hann og leiðrétta fréttina, þetta voru fyrstu upplýsingar, en nú hefur komið fram að foreldar hans eru innflytjendur frá Ruanda í Afríku.
Hvaða Jón er það ? kanski Magnússon ? væri honum líkt.
En nei, þetta voru ekki „fyrstu upplýsingar“ heldur bara kjafta og lygasögur.
Skömm að þið sjáið ekki sóma ykkar í því að eyða eða breyta „fréttinni“
Hvaða falsguð er það BjarniB?