Hægt að útrýma einhverfu ef menn viðurkenna rétt kyn fólksins

frettinHelga Dögg Sverrisdóttir, Kynjamál1 Comment

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:

Starfsfólk í félagsþjónustunni í Danmörku á að mennta svo þau geti sent einhverfa af stað í „kynjaferðalag“ – Danska félags- og húsnæðisstofnunin stendur á bak við það.

Danska félags- og húsnæðisstofnunin stendur að baki verkefni sem á að þjálfa starfsmenn félagsþjónustunnar til að senda einhverfa í „kynjaferðalag,“ Rökin eru, það kemur fram í ,,rannsókn“ sem mælir með því. Þegar sú rannsókn er skoðuð sést að hún trans aktivísk og styður hinsegin kenningar og hugmyndafræði. Þetta kemur fram í bloggi Lotte Ingerslev um málið.

Verkefnið mun leiða til framleiðslu fræðsluefnis – og líklega einnig ,,uppfærslu" námskeiða – sem upphaflega eru ætluð starfsfólki sem sinnir einhverfum.

Sagt er að verkefnið sé til að auka ,,gagnrýna nálgun á (kynja)viðmiðum" meðal fagfólks. Og það starfsfólk sem efist verða að velta fyrir sér „eigin kynjahlutdrægni.“

Þær svokölluðu ,,rannsóknir" sem verkefnið byggir á eru ekki gæðametnar á nokkurn hátt.

Meðal annars er gefið í skyn að einhverfu einkenni séu kannski alls ekki vegna einhverfu, heldur að þau séu vegna þess að fólk sem er með „mismunandi kynvitund" sé ,,rangkynjað" og stimplað.

Allt við „kynjaferðina" er lýst sem jákvæðu. Það eru engir ókostir og engin áhætta en maður þarf að taka fyrsta ,,prófið“, fyrsta skrefið í verkefninu er að taka „þekkingarpróf.“ Það gengur út á að þú svarir alls kyns spurningum um eigið kyn, tilfinningu þína gagnvart kyni o.s.frv.

Ekki er minnst á orð um samkynhneigð eða félagslegt smit. Ég hef farið ofan í saumana á þessu- skoðað smáatriðin segir Lotte. Hér er ritið sem Lotte hefur farið í gegnum lið fyrir lið.

Í einu fylgiskjalinu sem fylgir með færslu Lotte segir: Ef þú fylgir þessari „rökfræði" er augljóst að starfsfólk félagsþjónustunnar geta dregið úr eða jafnvel útrýmt einhverfum eiginleikum fólks með því að vera 100% fylgjandi þörf einhverfra fyrir að tengjast kynjafjölbreytileikanum. Það tryggir þeim meðferð sem færir líkamann í takt við innri reynslu þeirra af kynvitund, þannig að þeir verði ekki lengur fyrir fordómum vegna þess að samfélagið lítur á þá sem það kyn sem þeir „raunverulega" eru.

Lotte segir;  Eins og sjá má telja höfundar ritsins mikilvægt að starfsmenn félagþjónustunnar „afli sér þekkingar" um t.d. „kynskipti" og „notkun fornafna". Þannig þurfa þeir að staðfesta við einhverft fólk að það sé á leið í „kynjaferðina".

Lotte Ingerslev er sálgreinir sem hefur skrifað mikið um trans málaflokkinn af mikilli fagmennsku. Öll hennar umfjöllun fjallar um börn, því hún eins og bloggara er nákvæmlega sama hvað fullorðið fólk gerir. Hún kaupir og nær í rannsóknir, hefur augun opin fyrir því sem gerist í veldi Friðriks X og kemur því efni til skila. Það sem er þýtt hér að ofan er lítið brot af færslunni hennar sem sjá má hér.

Lotte býður fólki að kaupa kaffibolla til að styrkja vinnuna sem hún leggur í þetta. Þeir sem hafa áhuga að kaupa kaffi geta ýtt hér.

One Comment on “Hægt að útrýma einhverfu ef menn viðurkenna rétt kyn fólksins”

  1. .
    Ég hef ekki lesið annað eins !!! – Það kom upp í huga minn hvort þessi „Lotte Ingerslev“ væri sjálf samkynhneigð eða trans ???
    .
    Í greininni segir að rannsóknirnar varðandi samspils einhverfu vs. kynvitund séu „ekki gæðametnar á nokkurn hátt“.
    .
    ‐-‐–‐—‐———‐—‐–‐——‐—————————————-‐-‐-
    .
    Þess má geta að RÚV sýndi heimildarþátt um einhverfu á sýnum tíma. Þar var m.a. fjallað um rannsóknir dr.Lab sem er í Vancuver, Kanada, þar sem kom fram að óvenjulegt hátt hlutfall barna sem komu frá Austur-Afríku ( Sómalíu ) og fluttu til Bandaríkjanna í ákveðin fylki og fóru að neyta fæðis sem innihéldu mikið af kornvöru, t.d. morgunkorn greyndist með einhverfu. Rannsóknir leiddu í ljós að efnið E-280 sem er „Própíónsýra“ er úðað yfir korn sem rotvarnarefni, sem sett er í geymslu er mikið notað á þessum svæðum sem öðrum.
    Dr. Lab gerði rannsóknir á rottum sem eru að jafnaði mjög félagslindar og setti E-280 í þær. Viti menn, þær hættu öllum samskiptum við hverja aðra og sýndu mikil einkenni einhverju og einangruðu sig !!!
    .
    Það kom einnig fram að í jarðvegi og plöntum á sumum svæðum lifir ákveðin baktería ( clostridium tetani ) sem við meltingu framleiðir Própíónsýru, sem er ekki heppileg sé henni neitt í of miklum mæli og getur leitt til einhverfu.
    .
    Sé bakteríunnar c.tetani og kornvöru með E-280 Própíónsýru neytt í einhverjum mæli í langan tíma fari einstaklingar að sýna einhverfu ástand !!!
    …….
    Á sjónvarpsstöðinni „ÍNNTV“ sálugu voru sýndir þættir sem hétu : „Heilsuþáttur Jóhönnu“ sem var stjórnað af „Jóhönnu Vilhjálmsdóttir“. Þar var fjallað um einhverfu í einum þættinum og þar kom fram að gerðar höfðu verið rannsóknir á samspili mataræðis og einhverfu. Með breyttu mataræði væri hægt að slá á einkenni einhverfu og láta einkennin jafnvel hverfa, sé aðhaldi í mataræði beitt.
    .
    Þess má geta að sumir íslenskir kornbændur hafa úðað Própíónsýru yfir korn sitt fyrir geymslu til þess að koma í veg fyrir að það mygli ekki. Það er Olís sem hefur selt E-280 Própíónsýra hér á landi síðustu ár !!!
    .

Skildu eftir skilaboð