Hálf milljón horfðu á Trump í beinni útsendingu með Adin Ross: fékk Rolex úr að gjöf

frettinErlentLeave a Comment

Donald Trump mætti til þáttastjórnandans Kick Adin Ross í beinni útsendingu og má segja að hann hafi verið í toppformi hann hló, grínaðist og dansaði við Ross.

Ross, sem er með 4,4 milljónir YouTube áskrifenda, hefur stutt Trump í nokkurn tíma og fengið tækifæri til að hitta hann í UFC bardaga. Hann streymir á Kick, streymipalli sem er keppinautur Twitch.

Meðan á viðtalinu stóð, horfðu tæplega hálf milljón manns með í beinni útsendingu, þar gaf Ross Trump sérslega fallegt Rolex úr.

Ross sagði: „Ég vona að þér líkið við úrið... Rolex."

Trump svaraði: „Ég veit ekki hvað þú ert að gera en þú ert virkilega góðhjartaður maður. ég hef farið í fjölda viðtala og aldrei fengið svona góðar móttökur, þakka þér fyrir,“ sagði Trump.

Spjallið var með léttu ívafi, þar sem þeir félagarnir hlustuðu á tónlist á meðan þeir spjölluðu.

Streymið má sjá hér neðar:

Skildu eftir skilaboð