Yfir 300.000 dollarar söfnuðust fyrir eldri borgara sem ætlaði að selja skartgripina svo hann gæti séð um eiginkonuna

frettinErlentLeave a Comment

Níutíu ára gamall eldri borgari að nafni Donald varð nýlega fyrir mikilli blessun þegar hann ætlaði sér að selja skartgripina sína svo hann gæti séð um eiginkonu sína sem komin er með heilabilun.

Á myndbandinu hér neðar sést maðurinn fara á stað þar sem hann ætlaði sér að veðsetja skartgripina og var heldur tómt um að litast í buddunni.

Donald hefur átt í erfiðleikum með að borga leigu og sjá um eiginkonu sína sem nýlega greindist með heilabilun.

Starfsmaðurinn sem hann ræðir við heitir Jenelle, segist ekki geta tekið við þessu hjá honum, heldur hafi þau ákveðið að hefja söfnun og voru upphaflega 25 manns sem lögðu til í söfnunina og sem skilaði 1300 dollurum.

Atvikið var tekið upp á myndband og fór um eins og eldur um sinu á TikTok.

Jenelle var að vonast til að hjálpa þeim hjónum að finna stað til leigu á viðráðanlegu verði og stofnaði því GoFundMe síðu til að hjálpa Donald með útgjöldin.

Donald neyddist til að veðsetja skartgripina sína til að borga reikningana sína, og nokkrum vikum síðar kom hann aftur inn í veðsöluna með fleiri skartgripi sem hann ætlaði að selja til að greiða niður skuldir sínar. En í staðinn kom Jenelle honum á óvart og rétti honum umslag:

90-year-old veteran who was forced to pawn jewelry to take care of his wife with dementia, gets $300,000 raised for him after his story went viral.
byu/Vexiune inMadeMeSmile

Þetta kom Donald í opna skjöldu og sagði að hann gæti ekki tekið við peningunum, en Jenelle fullvissaði hann um að þetta væri eitthvað sem samfélagið vildi gera fyrir hann svo ætti hann líka afmæli bráðum. Peningarnir dugðu til að standa straum af 1.380 dollara reikningnum sem hann þurfti að greiða til að geta fengið skartgripina sína aftur.

En þetta var aðeins upphafið af gleðitíðindunum, Donald hefði aldrei getað ímyndað sér hvað kæmi næst.

Eftir að myndband af hugljúfu samskiptunum fór í loftið, streymdu framlög inn til GoFundMe frá fólki sem vildi hjálpa. Eins og er stendur fjársöfnunin komin yfir 300.000 dollara og framlögin láta ekki á sér standa og enn halast inn stuðningur. Gamli maðurinn trúði ekki sínum eigin augum og nokkuð er víst að hann getur farið áhyggjulaus að sofa, vonandi það sem eftir er.

Donald er skiljanlega ekki mikið fyrir athyglina, en Jenelle birti myndband af kappanum þar sem hún þakkaði öllum sem gáfu:

„Ég er ekki viss um að ég viti hvað ég á að segja eða hvernig ég á að segja það, annað en að segja að ég er innilega þakklátur fyrir allt sem þú hefur gert fyrir mig“ segir Donald þakklátur.

@jenellemarie0212 #donaldtheveteran #manchesternh #usgoldandpawn #gofundme #manchesternh ♬ original sound - Jenellemarie0212

Skildu eftir skilaboð