Páll Vilhjálmsson skrifar:
Íslendingar nota ADHD-lyf í meira mæli en þekkist í samanburðarlöndum. Lyfin geta valdið alvarlegum geðkvillum samkvæmt viðtengdri frétt.
Hann [Oddur Ingimarsson, geðlæknir] og fleiri meðferðaraðilar á geðdeild Landspítalans hafi tekið eftir því að meira væri um slík veikindi [geðrof og manía] á geðdeildinni í tengslum við ADHD-lyfjameðferð en áður. Einnig hafi fleiri tilfelli geðrofs komið upp í tengslum við notkun ADHD-lyfja þar sem hann starfar við endurhæfingu ungs fólks á Laugarási.
Oddur er ekki eini geðlæknirinn til að vekja máls á ótæpilegri notkun ADHD-lyfja. Fyrir ári skrifaði í Læknablaðið Óttar Guðmundsson geðlæknir:
Æ fleiri með lítil einkenni leita eftir greiningu og tilheyrandi lausnum á vandamálum daglegs lífs sem nú eru túlkuð sem ADHD-einkenni. [...]
Þetta fólk vill lyf til að geta bætt lífsgæðin og náð betur utan um lífið. Mér finnst eins og samfélagið sé að uppgötva á nýjan leik töframátt örvandi lyfja. [...]
Sú flökkusaga komst á kreik að ekki væri hægt að misnota lyfið en læknar vita af biturri reynslu að það er þvættingur.
Ástæða er að staldra við og endurmeta greiningu og meðferð ADHD er á daginn kemur að oflækning gerir illt verra.