Páll Vilhjálmsson skrifar:
Miðflokkur Sigmundar Davíðs mælist 19 prósent hjá Gallup, Kristrún og Samfylking með 26. Frá síðustu könnun bætir Miðflokkur við sig þrem prósentustigum; Kristrún og félagar standa í stað.
Báðir flokkarnir hagnast á óvinsældum sitjandi ríkisstjórnar. Óvinsældirnar stafa ekki af slæmu árferði til sjávar og sveita (les: efnahagsmálum] eða stórvandræðum í afmörkuðum sviðum - nema ef vera skyldi útlendingamálum. Ekki svo að skilja að allt sé í fínu standi á Fróni en fjarstæða að ástandið sé í kalda koli.
Meginástæða óvinsælda ríkisstjórnarinnar er að hún átti sinn tíma fyrsta kjörtímabilið, 2017-2021, en varð viðskila við samtíma sinn í kringum kófið. Gagnólíkir flokkar, Sjálfstæðisflokkur og Vinstri grænir, fundu samnefnara, að forða landinu frá viðvarandi stjórnarkreppu, en hafa hvor í sínu lagi verið í vörn með sín stefnumál. Ef Sjálfstæðisflokki verður ágengt með einhver mál bitnar það á Vinstri grænum og öfugt. Þriðji stjórnarflokkurinn, Framsókn, ríður ekki feitum hesti frá orrahríðinni, mælist með sex prósent.
Langtímaþróun telur einnig. Sjálfstæðisflokkur líður enn fyrir kratisma sem hann tileinkaði sér eftir hrun. Með réttu eða röngu var frjálshyggju kennt um hrunið. Viðbrögð sjálfstæðismanna var að halla sér að alþjóðlegum kratisma, fylgisspekt við Brussel, bæði ESB-skrifstofuna og Nató-deildina. Þróun síðustu ára, einkum frá 2016 (Brexit og Trump) er mótdræg miðhægriflokkum með værðarleg stefnumál forsjárkennd.
Sjálfstæðisflokkur mælist með 14 prósent fylgi. Þrír stærstu flokkarnir eru skv. Gallup með 59 prósent stuðning kjósenda. Er nær dregur kosningum, og haldi núverandi fylgi í grófum dráttum, verður spurt hvort raunhæf sé ríkisstjórn Samfylkingar, Miðflokks og Sjálfstæðisflokks.
Pólitískt eiginlega ekki. Miðflokkur og Samfylking eru kannski ekki eins og olía og vatn, en stappar nærri. Gagnvart þeim tveim er Sjálfstæðisflokkur kominn í hlutverk Framsóknar í sitjandi ríkisstjórn.
Raunsæir kjósendur, ekki bundnir á flokksklafa, og þeir eru giska stór hópur, munu taka með í reikninginn á kjördag hvaða ríkisstjórnarmynstur sé í kortunum. Þar mun skipta máli hvaða skilaboð flokksformennirnir senda á síðustu dögum kosningabaráttunnar og hvernig pörun þeirra virkar á hug kjósenda.
Að þessu sögðu er langt í kosningar. Gömul sannindi eru að vika er langur tími í pólitík. Enn eru ómannaðir framboðslistar og það er þekkt jarðsprengjusvæði. Litlir flokkar sem verða stórir í könnunum skila ekki alltaf mældu fylgi í hús á kjördag.
Síðasta mæling Gallup sýnir að sókn Samfylkingar er á enda runnin í bili. Mjúka miðvinstrið hennar Kristrúnar hefur kjörþokka sem ræðst meira af þreytu á mussuvinstri VG en sannfæringu að Garðabæjarfrúin sé komin með fulla stjórn á óreiðuliðinu sem löngum ræður ferðinni í Samfylkingu. Velgengni skæruliðablaðamanna sem ganga til liðs við flokkinn í von um uppreist æru byrlaðs mannorðs verður mælikvarði á hvað þykir stofustáss í híbýlum Kristrúnar.
Vandræði Sjálfstæðisflokksins eru sýnu mest af þrem stærstu flokkunum. Veikt þriðja sæti flokksins í þingkosningum yrði katastrófa. Óvíst er hvort Bjarni gefi kost á sér áfram. Missir yrði af honum. Bjarni er góður og gegnheill maður, þótt honum verði á mistök eins og gengur. Flokkurinn sakar þess að hafa ekki menn eins og Brynjar Níelsson og Sigríði Á. Andersen á fremsta bekk. Gefi Bjarni frá sér formennskuna er helst líklegt að Áslaug Arna nái flokksvopnum í tæka tíð fyrir kosningar. Áslaug Arna er voguð er aðrir hika. Sjálfstæðismenn leggja helst ekki á tæpasta vað. Í Stalíngrad-stöðu bjóðast ekki kostir án áhættu.
2 Comments on “Miðflokkurinn nálgast Samfylkingu, Stalíngrad Sjálfstæðisflokks”
Missir af Bjarna? Whattt… sjúkur einstaklingur
Jæja Palli minn, ég held að þú sért í mikilli afneitun þegar það kemur að pólitíkinni á Íslandi 😉
„Óvinsældirnar stafa ekki af slæmu árferði til sjávar og sveita“
Ég hló þegar ég las þetta, Palli þú er nú kennari og átt að vita betur, anskotinn hafi það!
Það er allt í kaldakoli, almenningur á hvorki til hnífs eða skeiðar, spilling, siðblinda, græðgi óskynsemi, leti og heimska eru þau orð sem koma fyrst upp í hugan hjá mér þegar ég horfi yfir pólitíska landslagi á Íslandi.
„Bjarni er góður og gegnheill maður, þótt honum verði á mistök eins og gengur“
Ég ætla að hrósa þér fyrir brandara dagsins 🙂
Bjarni Benediktsson er siðblindur eiginhagsmunaseggur sem hefur ALDREI unnið fyrir almenning á Íslandi, hann hefur aldrei gert mistök, þau eru ekki til í hans hugarheimi, end skiptir hann bara um stól tímabundið þar til klappliðið í kringum hann er búið að gleyma þessu. Bjarni Benediktsson er boðberi þessara 2% sem eiga allan auðinn í samfélaginu, þetta er fólkið hans Bjarna Benediktssonar. Það er eitt sem er rétt í þessu hjá þér og það er það að hausinn á honum er gegnheill og bein massivur á milli eyrnanna á honum.
Páll Vilhjálmsson vonandi læri þú af svona kjána-skrifum og gerir betur næst, ég myndi ætlast þess af þér þar sem þú ert nú kennari?