Trump mætir í viðtal hjá Fox news með einungis kvenkyns áhorfendum

frettinErlent, Stjórnmál, TrumpLeave a Comment

Donald Trump ætlar að mæta í klukkutíma langt viðtal Harris Faulkner hjá Fox News í Washington í vikunni, eingöngu kvenkyns áhorfendur verða í salnum.

Kamala Harris hefur forskot á Trump þegar kemur að kvenkyns kjósendum í öllum sveifluríkjum nema Arizona, þar sem Trump er með 50% á móti 47%. Á landsvísu hefur Harris 15 stiga forskot á Trump meðal kjósenda kvenna þar sem þær hygla varaforsetanum fyrir hvernig hún ætlar að taka á efnahagsmálum eins og verðbólgu, samkvæmt skoðanakönnun sem American University birti.

Áhorfendum gefst kostur á að leggja spurningar fyrir fyrrverandi forsetann. Þátturinn fer í loftið miðvikudaginn 16. október á The Faulkner Focus í hádeginu á staðartíma.

Washington Examiner greinir frá.

Skildu eftir skilaboð