Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Í þessari frétt segir frá nýnasista sem er á eftir konum sem nota rangt kyn um hann. Tilgangurinn er mörgum hulin. Eftirtektarvert er, að lögin sem tóku gildi í Þýskalandi 1. nóvember 2024 gerir nasistanum þetta kleift. Bent var á afleiðingar laganna, en því miður hlustuðu ekki stjórnmálamenn.
Sækir um flutning í kvennafangelsi
Sven Liebich, skeggjaður 53 ára nýnasisti, afplánar 18 mánaða dóm í karlafangelsi í Saxlandi. Hann var sakfelldur í fyrra fyrir haturs- og meiðyrðaákærur. Hann breytti nafni sínu og „kyni“ samkvæmt lögum sem þýsk yfirvöld samþykktu. Íslensk lög um kynrænt sjálfræði eru sambærileg. Liebich gerir þetta til að komast í kvennafangelsi.
Breytti „kyni“ sínu í von um mildari aðstæður
Nasistinn áfrýjaði dómnum eftir að hafa skipt um ,,kyn“, hann segist núna vera kona og gengur undir nafninu Marla-Svenja Liebich.
„Ég er hræddur við mismunun," sagði dæmdi glæpamaðurinn, sem skilgreinir sig sem konu, í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér.
Þrátt fyrir að hann hafi heillað einhverja með því að breyta skráningu sinni benti miðillinn á, að hann hafi ekki breytt útliti sínu og er skeggjaðri í dag en áður en hann skilgreindi sig konu. Líta má á það sem staðfestingu á að hugur fylgir ekki máli. En slíkt virðast trans-hreyfingar ekki taka alvarlega, engin hreyfing hefur mótmælt þessum gjörnungi nýnasistans.
Liebich, sem hefur tengsl við nýnasistaflokkinn Homeland og öfgahægriflokkinn Alternative für Deutschland, gerir þetta eingöngu í þeirri von að hann verð fluttur í kvennafangelsi segir miðlinn. Margoft hefur verið bent á þessa misnotum á trans- málaflokknum og alltaf eru það konur sem blæða.
Má ekki efast um að lögin haldi
Embættismenn segja að lagabreytingin tryggi ekki flutning. ,,Það er ekki sjálfkrafa trygging fyrir því að karlmaður verði sendur í kvennafangelsi eftir að hafa breytt „kyni“ og nafni“ sagði talsmaður saksóknaraembættisins. „Málin eru skoðuð í hverju tilviki fyrir sig og er einstaklingsbundið.“ Konur í fangelsum, sem er einn viðkvæmasti hópur kvenna, hafa ekkert um það að segja hvort karlmenn, sem skilgreina sig sem konur, séu vistaðir á sama stað og þær. Hefðbundin kvennasamtök láta ekki í sér heyra eða kvenkyns þingmenn. Af hverju?
Talsmaður þýsku sakamálaskrárinnar sagði að kynskipti Liebich hafi ekki áhrif á sakaferil öfgamannsins. Breyting á lögum um borgaralega stöðu er aukaatriði í þessu máli sagði fulltrúinn.
,,Kynbreyting“ Liebich kom til vegna umbóta á sjálfsákvörðunarlögum landsins, sem gerir fólki kleift að breyta nafni sínu og kyni á opinberum skjölum án þess að gangast undir geðmat.
Liebich er alræmdur í austur-þýsku borginni sem skipuleggjandi „Montagsdemo" - vikulegra hægrisinnaðra mótmæla. Yfirvöld hafa áður lýst fanganum sem þekktum „hægriöfgamanni."
Liebich hefur náðst á myndir með armbönd að hætti nasista og sem þátttakandi í fjöldafundum með rauða, hvíta og svarta fána, að sögn miðilsins.
Stutt er í kosningar í Þýskalandi. Margir þar í landi bera þá von í brjósti að við völdum taki flokkar sem taka af skarið, fella lögin úr gildi og hugar að mannréttindum stúlkna og kvenna. Mannréttindi kvenna eru skert í öllum þeim löndum sem hafa gild lög um sjálfákvörðunarrétt fólks um kynskráningu.