Reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði
Stjórn Fréttin ehf., sem heldur úti fréttavefnum https://frettin.is hefur sett sér reglur um ritstjórnarlegt sjálfstæði miðilsins, eins og kveðið er á í gr. 24 í lögum nr. 38 frá 2011 um fjölmiðla. Fréttin ehf. telur að ritstjórnarlegt sjálfstæði starfsmanna sé ein af hornsteinum faglegrar fjölmiðlamennsku.
Eigendur og sérhagsmunir
Ritstjórnarlegt sjálfstæði felst í frelsi ritstjóra til að taka ákvarðanir án afskipta eigenda og stjórnenda Fréttin ehf. enda er ritstjórninn ráðinn til að framfylgja í störfum sínum sjónamiðum og markmiðum eigenda og stjórnenda. Það er stefna Frettin.is að í umboði ritstjóra hafi starfsmenn á ritstjórn fullt ritstjórnarlegt sjálfstæði.
Í því fellst að þeir þurfa ekki að taka tillit til skoðana eða hagsmuna eigenda eða viðskiptamanna Frettin.is ef siðareglur Blaðamannafélags Íslands, samviska þeirra eða sannfæring segir þeim að ekki sé rétt að gera slíkt. Blaðamanni verður ekki gert að vinna verkefni sem stangast á við sannfæringu hans og samvisku.
Eigendur Fréttin ehf. skulu ekki hafa afskipti af einstökum fréttaskrifum eða ræða það beint við viðkomandi blaðamann, heldur skulu mál af því tagi tekin upp við ritstjórn eða fréttastjóra Fréttin ehf.
Ritstjórnastefna
Ritstjórnalegt sjálfstæði tekur mið af og takmarkast af ritstjórnarstefnu vefsins og séu verkefni þau sem blaðamanni er falið að vinna sannarlega innan ramma skilgreindrar og yfirlýstrar ritstjórnarstefnu, ber honum að sinna þeim og ekki vinna gegn þeim. Ritstjóri er ábyrgur fyrir túlkun og framkvæmd ritstjórnarstefnu og hans túlkun á stefnu og forgangsröðun verkefna, er það sem gildir í daglegu starfi.
Starfsskilyrði ritstjóra
Blaðamönnum ber að fá aðstöðu og tíma til að setja sig inn í mál. Þeir skulu alla jafnan fá tækifæri til að vinna á þann hátt sem þeir telja réttast og nota þau efnistök sem þeir telja best án sérstakra leiðsagnar ritstjóra, nema þess sé óskað. Hins vegar ræður fréttamat ritstjóra og fréttastjóra og túlkun á því hvernig og hvað er endanlega birt. Blaðamenn Frettin.is hafa fullan tillögurétt þegar kemur að því að velja sér efni og úrvinnslu þess. Sé frétt og nálgun blaðamanns í tilteknu máli breytt í veigamiklum atriðum á viðkomandi blaðamaður rétt á skýringu ritstjóra á breytingunum.
Skilyrði uppsagnar
Ekki er hægt að segja upp starfsmanni án skriflegrar skýringar. Gildir það undantekningarlaust hver svo sem ástæða uppsagnarinnar er og eru slíkar skýringar ekki einkamál blaðamanns og útgefenda Frettin.is nema ef blaðamaður eða útgefandi óski þess sérstaklega.
Reykjavík 21.12. 2021
Margrét Friðriksdóttir - Stofnandi Fréttin.is