Vitni sáu mann með riffil skjóta á Trump: „leyniþjónustan gerði ekkert“

frettinErlent1 Comment

Trump stuðningsmenn voru vitni að því þegar maður með riffil birtist bak við hús sem þau voru stödd í og byrjað að klifra upp á húsþak, haldandi á riffil.

Fólkið gerði lögreglunni og leyniþjónustunni(CIA) strax viðvart, en þeir hafi ekki viljað aðhafast neitt og virtust utangátta. Vitnin undra sig á því hvers vegna Trump hafi ekki verið varaður við og gert að forða sér. Hafi þetta staðið í nokkrar mínútur þangað til ódæðismaðurinn byrjaði að skjóta úr rifflinum í átt að Donald Trump fv. Bandaríkjaforseta.

„Við vorum að benda á manninn og reyna gera lögreglunni og leyniþjónustunni viðvart, og þeir hunsa okkur bara að gera ekki neitt“, segir vitnið í myndbandinu hér neðar.

Þegar ódæðismaðurinn hafði hleypt fimm skotum úr rifflinum í átt að Trump, hafi leyniþjónustan loksins brugðist við og skotið manninn til bana.

Elon Musk vekur athygli á viðtalinu og fer fram á að yfirmaður leyniþjónustunnar segi af sér:

Viðtalið má sjá hér neðar:

One Comment on “Vitni sáu mann með riffil skjóta á Trump: „leyniþjónustan gerði ekkert“”

  1. Kæmi ekki á óvart að þetta banatilræði var gert fyrir tilstuðlan eða samþykki háttsettra manna í D.C.

Skildu eftir skilaboð