Lyfjastofnun Bandaríkjanna tapar stríðinu gegn Ivermectin: fjarlægja allar aðvaranir um notkun lyfsins gegn covid

frettinCOVID-19, Erlent3 Comments

Í desember 2021 varaði Lyfjastofnun Bandaríkjanna(FDA) við því að nota Ivermectin lyfið, til að meðhöndla eða koma í veg fyrir COVID-19 og hélt því fram að væri einungis ætlað dýrum. „Notaðu aldrei lyf sem ætluð eru dýrum á þig eða annað fólk. Ivermectin er dýralyf og alls ekki ætlað við meðhöndlun á COVID-19 hjá mönnum og getur reynst hættulegt,“ sagði FDA á þeim tíma.

Þetta var mjög umdeild yfirlýsing, því lyfið hafði áður verið lofað fyrir framúrskarandi verkun með fjölverkandi áhrif á afríska farandverkamenn og árið 2015 hlaut uppfinningamaður lyfsins Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvunina og var lyfið jafnframt lofað í nokkrum vísindatímaritum.

Lyfið hefur verið notað á mönnum síðan 1987 og veitti FDA opinbert leyfi nokkrum árum síðar. Lyfið fæst meðal annars í apótekum hérlendis.

Nú hafa verið gerðar 101 Ivermectin COVID-19 samanburðarrannsóknir sem sýna 62% minni áhættu þar sem dró verulega úr einkennum í fyrstu meðferð á meðal COVID-19 sjúklinga.

Hópur lækna höfðaði alríkismál gegn bandaríska heilbrigðis- og mannþjónusturáðuneytinu (HHS) og Matvæla- og lyfjaeftirlitinu (FDA) vegna ólögmætra tilrauna stofnananna, til að reyna koma í veg fyrir notkun ivermektíns við meðferð COVID-19.

Málið, sem höfðað var í suðurhluta Texas í Bandaríkjunum í Galveston, heldur því fram að Matvæla- og lyfjaeftirlitið hafi farið yfir vald sitt og að ósekju truflað læknisstörf þeirra.

Stefnendur, Dr. Mary Talley Bowden, Paul E. Marik og Robert L. Apter mótmæla því að FDA hafi lýst því yfir að ivermektín sé hættulegt til manneldis. Þeir taka fram að FDA hefur samþykkt ivermektín til notkunar í mönnum síðan 1996 við ýmsum sjúkdómum. Hins vegar fullyrða þeir að með tilkomu COVID-19 heimsfaraldursins hafi FDA byrjað að gefa út skjöl og færslur á samfélagsmiðlum sem letja notkun veirulyfsins til meðferðar við COVID-19.

„Við erum að kæra FDA fyrir að ljúga að almenningi um ivermektín,“ segir Dr. Bowden.

Fullyrðingar voru settar fram um að stofnanirnar hafi rangtúlkað lögin með því að lýsa opinberri afstöðu FDA gegn notkun Ivermectin, án þess að nefna það að læknum væri heimilt að ávísa lyfinu.

Vitnað er í bandarísk lög í kvörtuninni, þar á meðal ákvæðið um að FDA „megi ekki trufla heimild heilbrigðisstarfsmanns til að ávísa eða gefa löglega skráð lyf til sjúklings vegna hvers kyns ástands eða sjúkdóms innan lögmæts heilbrigðisstarfsmanns-sjúklings/samband."

Samþykkja að fjarlægja allar yfirlýsingar um að lyfið gagnist ekki við Covid

Á fimmtudaginn samþykkti bandaríska matvæla- og lyfjaeftirlitið (FDA) að fjarlægja allar fyrri færslur á samfélagsmiðlum og neytendaráðgjöf sem fjallaði sérstaklega um notkun ivermektíns til að meðhöndla eða koma í veg fyrir COVID-19.

„FDA tapar stríði sínu gegn ivermektíni og samþykkir að fjarlægja allar færslur á samfélagsmiðlum og neytendatilskipanir varðandi ivermektín og COVID, þar á meðal vinsælasta tíst þess í sögu FDA. Þetta markar tímamót og setur mikilvægt fordæmi í því að takmarka útbreiðslu FDA inn í samband læknis og sjúklings,“ skrifaði Dr. Bowden á samfélagsmiðlum.

FDA samþykkti að eyða Twitter, LinkedIn og Facebook færslum frá 21. ágúst 2021 sem hljóðaði: „Þú ert ekki hestur. Þú ert ekki kýr. Í alvöru, allir saman. Hættið þessu." (Skjámynd af X/twitter er hér neðar og enn á Twitter nú X hér.)

Lyfjastofnunin mun einnig fjarlægja Twitter færsluna frá 26. apríl 2022 sem hljóðar: „Haltu á hestunum þínum, allir saman. Ivermectin gæti verið vinsælt, en það er samt ekki leyft eða samþykkt til að meðhöndla COVID-19.

Ennfremur mun FDA eyða öllum öðrum færslum á samfélagsmiðlum á FDA reikningum sem tengjast vefsíðu sinni sem ber yfirskriftina „Af hverju þú ættir ekki að nota Ivermectin til að meðhöndla eða koma í veg fyrir COVID-19.

Það mun síðan loka vefsíðu sem kölluð er „neytendauppfærsla“, sem upphaflega var birt 5. mars 2021 og endurskoðuð 7. september 2021. FDA heldur réttinum til að birta endurskoðaða uppfærslu.

Hætta við málsóknina

Bowden sagði að hún og meðkærendur hennar Dr. Paul E. Marik og Dr. Robert L. Apter hefðu ákveðið að hætta við málsóknina, þar sem stofnunin hefði samþykkt kröfur þeirra.

„Eftir næstum tvö ár og úrskurði frá fimmta áfrýjunardómstólnum hefur FDA samþykkt að fjarlægja villandi færslur(falsupplýsingar) á samfélagsmiðlum og neytendatilskipanir varðandi ivermektín og Covid-19,“ segir Bowden.

3 Comments on “Lyfjastofnun Bandaríkjanna tapar stríðinu gegn Ivermectin: fjarlægja allar aðvaranir um notkun lyfsins gegn covid”

  1. Pingback: FDA tapar orrustu í stríðinu gegn ívermektín - Krossgötur

  2. Í Desember fyrir 6 mánuðum greindist ég með alvarlegt flöguþekju krabbamein á 3 stigi í hálsi upp hann með risa æxli sem lá upp í munn og tungu kalla tungurótarkrabbi og er mjög alvarlegur með miklar aukaverkanir sem var búið að dreyfa sér um. Lífslíkur voru sagðar c.a 20-30% ef að geisla og lyfjameðferð væri tekin en tók geislameðferðina en neitaði lyfjameðferð því það er viðbjóður sem var ekki velkominn. Og ég fék Ivamektine og annað lyf sem eikur virkni Ivamectine sem kostar 12.000 kr taflan. Ég þurfti að taka 5-8 töflur á dag sem gerir 60-90 þúsunda klst að daglega og með öðrum náttúrulyfjum ásamt Aloe Vera og öflugum stofnfrumuplástrum Life Wafe þá var daglegur kostnaður yfir 100.000 á dag. En læknar landspitalans mæltu eindregið á móti mínum ákvörðunum og smættuðu ákvarðanir mínar að taka Ivamectine og töluðu um sem “hesta og orma lyf” með hneykslun í rómi, fyrirlitningin á ákvörðunum mínum leyndu sér enganveginn. En lifslikurnar voru frá byrjun ansi lakar en núna nokkrum mánuðum seinna er ég orðinn algerlega krabbameins laus sem er nær því að vera kraftaverk frekar en viðbúið. Læknar forðast sem heitan eldinn að ræða um Ivamectin og möguleikann á tengingu við batann.
    Læknar þaga algerlega um staðreyndirnar í samtölumað ég hafði valið að taka ekki krabbameins lyfin og frekar notað náttúrulegar aðferðir og náttúrulyf með eigin fróðleik eftir að hafa lagst af miklum krafti í að fræða mig um allar mögulegar aðferðir til að styrkja ofnæmiskerfið og veikja krabbameins frumunnar aðrar en geisla og cemo lyfjameðferðar. Læknar virðast allment læra bara ákveðnar aðferðir og gefa skít í flestar aðrar og álitið og hunsunin á virkni og gagnsemi Ivamectine er lýsandi dæmi um þessa heimatilbúnu fákunnáttu lækna og lyfja geirans gagnvart öðru en gömlum aðferðum sem virka takmarkað.

Skildu eftir skilaboð