Áströlsk kona flýr inn á veitingastað eftir hópnauðgun í París – Myndband

JonErlentLeave a Comment

Óhugnanlegt myndband gengur nú um internetið, í því sést áströlsk kona hlaupa skelfingu lostin inn á veitingastað í París í rifnum kjól.

Konan virtist í miklu uppnámi og greinir frá því að fimm menn af afrískum uppruna hafi nauðgað sér, á meðan hún er inni á veitingastaðnum birtist karlmaður sem hún segir vera einn af gerendum sínum.

Maðurinn gengur upp að konunni og klappar henni á bakið, það virðist vekja reiði viðstaddra og annar  gengur upp að honum og kýlir, við það leggur meintur gerandi á flótta.

Lögreglan mætti á svæðið skömmu siðar, málið er enn óupplýst en Ólympíuleikarnir fara fram í París eftir nokkra daga.

Skildu eftir skilaboð