Páll Vilhjálmsson skrifar:
Múhameð Kourani skiptir um nafn til að fela afbrotsögu sína; Sema Erla Serðugla kærir tölfræði um afbrotahneigð íslamskra hælisleitenda. Múslímsku skötuhjúin gera gys að íslenskum lögum og reglum.
Viðtengd frétt útskýrir nafnaflakk Múhameðs Kourani. Í annarri frétt mbl.is er sagt frá kæru Semu Erlu og einkafélags hennar, Solaris. Sá kærði er Helgi Magnús Gunnarsson vararíkissaksóknari sem áravís mátti sitja undir líflátshótunum Múhameðs Kourani. Helgi Magnús vann sér til óhelgi, samkvæmt Semu Erlu, að setja í orð þekkta tölfræði um afbrotahneigð íslamskra hælisleitenda.
Í reynd er Sema Erla að kæra tölfræði og þekktar upplýsingar sem auðvelt er að nálgast á netinu.
Nokkur dæmi:
Palestínumenn brjóta þrisvar sinnum oftar af sér en Pólverjar.
BBC segir múslímar, sem gefa sig að hryðjuverkum, eigi oft þann sameiginlega bakgrunn að byrja ferilinn á unga aldri sem smáglæpamen.
Múslímar 2,5 til 3,5 sinnum líklegri til að stunda glæpi en Meðal-Daninn.
Af 321 Palestínuaraba sem fengu hælisvist í Danmörku árið 1992, samkvæmt sérlögum, voru 270 enn í Danmörku árið 2019. Alls 204, tveir þriðju, höfðu komist í kast við lögin, þar af var 71 með fangelsisdóm á bakinu. Tölfræðin lýgur ekki.
Múslímar mergsjúga vestræna velferð, 392% munur er á þeim og öðrum hópum.
Helgi Magnús klæddi í eigin orð vel þekktar staðreyndir. Sema Erla segir það fela í sér „rógburð og smánun vegna þjóðernisuppruna eða þjóðlegs uppruna“ að kynna almenningi upplýsingar.
Hvorki nafnalögin íslensku né almenn hegningarlög voru sett til að auðvelda einstaklingum og hópum að sigla undir fölsku flaggi inn í íslenskt samfélag og setjast upp á velferðarþjónustuna án þess að greiða krónu í samneysluna. Múhameð Kourani hefur verið hér í sjö ár og aldrei stundað vinnu. Íslendingar eru teknir í þurrt ... bakaríið og Sema Sólaris krefst áframhaldandi opingáttarstefnu gagnvart miðausturlöndum.
One Comment on “Sema Erla og Kourani draga dár að þjóðinni”
Múslimavæðing Vesturlanda er eins og að safna í bálköst, síðan er kveiktur mikill eldur og allt brennur.