Ástþór býður umdeilda forsetabílinn milljón krónum ódýrari

frettinInnlentLeave a Comment

Ástþór Magnússon fv. forsetaframbjóðandi, setti tilkynningu á Facebook í dag, að hann bjóði forsetabílinn umdeilda mun ódýrari en umboðið, sem hefur verið mikið í umræðunni á undanförnum dögum vegna kaupa Höllu Tómasdóttur og eiginmanns hennar á glænýjum Volvo rafmagnsjeppa frá Brimborg.

Eins og fram hefur komið þá fékk Halla bílinn á sérstökum vildarkjörum fyrir dygga viðskiptavini, sem nú hefur verið nefndur forsetaafslátturinn. Upphaflega var afslátturinn kallaður skyldmennaafsláttur sem nú hefur verið breytt. Margir viðskiptavinir hafa haft samband við Brimborg í kjölfarið og óskað eftir sama afslætti.

Ástþór er ekki einungis þekktur fyrir að vera friðarsinni og forsetaframbjóðandi, heldur er hann einnig þekktur bílasali sem hefur flutt lúxuskerrur til Íslands um árabil.

Ástþór segir í tilkynningunni að hann geti boðið upp á þennan bíl milljón krónum ódýrari en Brimborg býður með forsetaafslættinum. Verðið á sama bíl hjá Islandus sem er í eigu Ástþórs, er frá 5.790.000 og því töluvert lægra verð.

Tilkynning Ástþórs í heild sinni:

Fáðu milljón króna lægra verð en verðandi forseti á Volvo rafbíl
Kíktu á forsetabílinn hjá Islandus Bílum, Volvo EX30 á LÆGRA VERÐI en verðandi forseti fékk hjá samkepnnisaðlanum. Pantaðu þennan bíl hjá islandus.is í dag á meira en milljón ódýrara en verðandi forseti keypti bílinn með prumpafslætti.

Halla greiddi kr. 7.280.000 fyrir Volvo EX30. Islandus útvegar þér betra verð:
2024 Volvo EX30 verð frá Kr. 5.790þús

Heimkomið verð með verksmiðjuábyrgð á Íslandi.

Skildu eftir skilaboð