Dagur B. boðar kreppu, þó ekki fyrir sjálfan sig

frettinInnlent, Páll Vilhjálmsson, PistlarLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Í viðtengdri frétt boðar efnahagskreppu Dagur B. Eggertsson nýhættur borgarstjóri og formaður borgarráðs. Hagfræðiprófessor segir krepputal meira í ætt við óskhyggju.

„Ég myndi nú ekki þora að full­yrða neitt svo stór­karla­legt [að það sé komin kreppa],“ er haft eftir Gylfa Magnús­syni pró­fess­or í hag­fræði við Há­skóla Íslands og fyrrum fjármálaráðherra.

Efnahagskreppa felur í sér lækkandi tekjur launafólks, atvinnuleysi og minni skatttekjur opinberra aðila sem bitnar á samneyslunni.

Sérlega illa fer á því að Dagur B. óski eftir kreppuástandi í samfélaginu. Hann er sjálfur nýkominn með starfslokasamning sem minnir meira á sjálftöku úr borgarsjóði en eðlilegt launauppgjör.

Sumir kunna ekki að skammast sín.

Skildu eftir skilaboð