Páll Vilhjálmsson skrifar:
„Að taka af kynjaskipt salerni er hrein og klár aðför að persónuvernd og öryggi kvenna. Þrátt fyrir að við konur séum líka menn þá ættu flestir að vera búnir að fatta, að við erum ekki alveg eins. Ég mótmæli því af öllum kröftum og tel það gróft brot á mannréttindum okkar að þvinga okkur til að pissa standandi ellegar setjast á annarra manna þvag.“
Ofanritað er tilvitnun í grein Ingu Sæland formanns Flokks fólksins í leiðaraopnu helgarútgáfu Morgunblaðsins. Ég neita að pissa standandi er fyrirsögnin. Tilefnið er reglugerð ráðuneytis Guðlaugs Þórs er bannar að merkja konum sérgreind salerni á opinberum stöðum. Inga útskýrir sjálfstæðisstefnuna fyrir vók-ráðherranum:
Þessi reglugerð er enn eitt dæmið um hvernig stjórnvöld hafa gert risavaxnar breytingar á samfélaginu án samráðs við almenning eða atvinnurekendur. Hávær minnihluti hefur á örskömmum tíma náð að snúa samfélaginu á hvolf með yfirgangi og aðkasti á alla þá sem voga sér að vera þeim ekki sammála.
Sjálfsstæðisstefna er að standa í lappirnar þegar frekjuhópar samfélagsins gera atlögu að almannaheill og almennri skynsemi. Lokaorð Ingu eru brýning til sjálfsstæðismanna:
Það er kominn tími til að stíga niður fæti og segja stopp! Hingað og ekki lengra!
Ég þori!
2 Comments on “Inga meiri sjálfstæðismaður en Gulli”
Þar sem drulla gagnrýnir skít!!!
Þar sem tveir hálvitar deila verður til fáviti!!!
Ég ætla að nota orð Ingu Sæhland og segja það að Það er kominn tími til að stíga niður fæti og segja stopp! Hingað og ekki lengra!
Inga hættu þá að níða niður atvinnuvegina í landinu og láttu af stuðningi við massa-innfluttning á fólki frá ólíkum trúar og menningarheimum utan úr heimi til landsins!
Það er lágmark að bjóða konum sæti.