Ásthildur Lóa Þórsdóttir, formaður Hagsmunasamtaka heimilanna, hefur sagt sig úr stjórn samtakanna og þar með frá formennsku. Ásthildur Lóa hefur verið skipuð Mennta- og barnamálaráðherra í nýrri ríkisstjórn Íslands. Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna þakkar Ásthildi Lóu fyrir vel unnin störf í þágu samtakanna á liðnum árum og óskar henni hjartanlega til hamingju með hina nýju stöðu.
Guðmundur Ásgeirsson, varaformaður, gegnir hlutverki formanns Hagsmunasamtaka heimilanna fram að næsta aðalfundi sem er fyrirhugaður 20. febrúar næstkomandi.
Stjórn Hagsmunasamtaka heimilanna