Páll Vilhjálmsson skrifar:
Eftir embættistök Donald Trump og fyrstu forsetatilskipana eru aðeins tvö kyn opinberlega viðurkennd í Bandaríkjunum. Í tíð Biden fráfarandi forseta var leyft að auðkenna kyn sitt í bandarísku vegabréfi með X. Ekki lengur, nú eru menn annað tveggja karl eða kona. Hinsegin er úthýst úr alríkisstofnunum.
Kynjahopp telst ekki lengur til mannréttinda og bábiljan um að hægt sé að fæðast í röngum líkama fer þangað sem hún á heima - í ruslið.
Telegraph tekur saman helstu forsetatilskipanir sem verða gefnar út fyrstu daga embættistíðar Trump. Af listanum að dæma er höfuðáherslan í fyrstu embættisverkum að úthýsa vók-hugmyndafræðinni. Þýska útgáfan Die Welt orðar umskiptin með fyrirsögninni Trump inn, vók út.
Stór hluti vók er svokölluð DEI-hugmyndafræði. Á íslensku er heitið FJI, Fjölbreytni, Jöfnuður og Inngilding. Undir þessum formerkjum er háskólar orðnir gróðrastía fáránleikafræða, sem tilfallandi hefur áður gefið gaum.
Dálkahöfundur Telegraph kennir nýtt kjörtímabil Trump við byltingu og telur að róttækari breytingar verði á Bandaríkjunum en sést hafi í áratugi.
Bandaríkin eru upprunaland vóksins sem breiddist þaðan til annarra heimsálfa með ljóshraða stafrænnar miðlunar. Nú þegar Hvíta húsið situr maður er lýsir stríði á hendur vókinu er aldrei að vita nema heilbrigð skynsemi eigi afturkvæmt. Á Íslandi mætti byrja á því að afturkalla leyfi Samtakanna 78 að hafa í frammi í leik- og grunnskólum þá ljótu lygakenningu að sum börn séu fædd í röngum líkama.
3 Comments on “Í landi Trump eru kynin aðeins tvö, hinsegin úthýst”
Virkilega Illa upp set fyrirsögn og mjög svo villandi enda Er hinseginn ekki úthýst heldur Woke-i woke er trans hugmyndafræði og mörg kyn Enn ekki Lessur eða hommar sem orðið hinseginn hefur verið notað fyrir síðustu 30 árin!!
Ég skil nú ekki afhverju fólk er að rífast um þessa hluti?
það er liffræðilega alveg á hreinu að það eru nú bara tvö kyn, karl og kona punktur málið afgreitt!
Það er alveg rétt að það eru nú bara tvö kyn, karl og kona, alveg sama hvað fólk upplifir sig,,svo einfallt er það nú….