Kristín Elfa Guðnadóttir kennari er fyrirmynd góðra kennara…eða!

frettinHatursorðæða, Helga Dögg Sverrisdóttir, Innlent1 Comment

Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:

Margt áhugavert fer fram í hópnum sem kallar sig Baráttuhópur um ofbeldismenningu. Hvergi er eins miklu ofbeldi beitt og þar. Menn láta sitt hvað út úr sér.

Eldur Kristinsson gerði embættistöku Trump skil á eigin síðu. Eins og mörgum líkar honum vel að forsetinn hafi tekið við völdum og sér í lagi þær vegna þeirra breytinga sem hann ætlar sér að gera. Segir sannleikann, tvö kyn.

Kennari að nafni Kristín Elfa Guðnadóttir, leikskólakennari, fer á kostum inni á síðunni um ofbeldismenningu. Ef orð hennar eru tengd við þessa grein þá blöskrar manni, fyrirmynd kennara í orði og á borði.

Í færslunni tekur hún rangan pól í hæðina. Eldur hatar ekki nokkurn mann. Hann talar hins vegar fyrir því að börn séu ekki send í hormónameðferðir, þeim sé sagður sannleikurinn um kyn (aðeins tvö), að strákar taki ekki sæti stúlkna í íþróttum undir nafninu ,,skilgreini mig sem stúlku eða konu“ og ekki sé hægt að breyta kyni.  Eldur hefur líka talað gegn skurðaðgerðum, s.s. tvöföldu brjóstnámi á unglingsstúlkum en það þekkir hann frá Bretlandi.

Eldur hefur líka sagt, það mega allir skilgreina sig eins og þeir vilja en það á ekki að ganga á réttindi annarra eins og lög um kynrænt sjálfræði gerir nú. Eðlilegt, ekki satt. Þátttaka karlmanna, sem skilgreina sig sem konu, ganga á réttindi kvenna. Ekkert hatur í að segja sannleikann.

Að kennari setji sig upp á móti þeim málflutningi er í hæsta máta undarlegt. Stúlkur virðast ekki njóta réttinda í huga Kristínar Elfu haldi hún þessu fram sem hún skrifar í færslu sem má sjá neðar og kannski ekki börnin heldur.

Kristín Elfa Guðnadóttir er kennarastéttinni til háborinnar skammar en hún merkir sig á forsíðumynd samfélagsmiðilsins sem kennara.

Nú má velta fyrir sér hvort Kennarasambandi Íslands sé ekki misboðið að félagsmaður sinni hafi uppi svo hatursfull ummæli, að sjóarar (með allri virðingu fyrir þeim) verða nunnur í samhengi við þennan málflutnings kennarans!

Þjóðin ætti að vera stolt að fjáfesta í svona kennurum. Vonandi taka nemendur ekki upp orðfæri Kristínar Elfu kennara.

One Comment on “Kristín Elfa Guðnadóttir kennari er fyrirmynd góðra kennara…eða!”

  1. Jahrérna Hér mikið ofboðsla mikið myndi ég reka hana ef ég væri skólastjórinn hennar!

Skildu eftir skilaboð