Fáfræðivæðing „fréttastofu“ RÚV

frettinFjölmiðlar, Innlent, Íris ErlingsdóttirLeave a Comment

Hve lengi ætla landsmenn að láta bjóða sér að greiða fyrir þykjustufréttir úr áróðursverksmiðjunni í Efstaleiti?  

Íris Erlingsdóttir skrifar:

„Fyrrverandi mágkona sakar Pete Hegseth um gróft heimilisofbeldi," er fyrirsögn „fréttar"RÚV dags. 22. jan. sl. Hún „sakar varnarmálaráðherraefni nýs Bandaríkjaforseta um að hafa beitt fyrrverandi eiginkonu sína lífshættulegu ofbeldi. Því sé hann ekki hæfur til starfans," segir í „frétt" RÚV. 
 
Mágkonan fyrrverandi, Danielle Hegseth, var gift Nathaniel Hegseth, sem er bróðir Pete Hegseth. „Fréttastofa“ RÚV tók fram að „ráðherraefnið þvertekur fyrir ásakanirnar," en minntist ekki orði á að umrædd fyrrverandi eiginkona hans, Samantha Hegseth, þvertekur einnig fyrir þær. 
 
Í yfirlýsingu til NBC fréttastofunnar síðastliðinn mánudag sagði Samantha Hegseth: „Fyrst og fremst hef ég ekki og mun ekki tjá mig um hjónaband mitt og Pete Hegseth. Ég hef enga fulltrúa sem tala fyrir mína hönd, né hef ég nokkurn tíma beðið neinn að tala um eða deila upplýsingum um hjónaband mitt fyrir mína hönd, hvort sem það er blaðamaður eða nefndarmaður, o.s.frv."
 
Aðspurð hvað í yfirlýsingu Danielle Hegseth sé rétt, sendi Samantha Hegseth frá sér aðra yfirlýsingu til NBC næsta dag, þriðjudag: „Ég trúi ekki að upplýsingar þínar séu réttar og ég hef sent þær lögmanni mínum... Það var ekkert líkamlegt ofbeldi í mínu hjónabandi. Þetta er eina yfirlýsingin sem ég mun veita; ég hef látið ykkur vita að ég mun ekki tala um hjónaband mitt og Pete. Vinsamlegast virðið þessa ákvörðun.“
 
„Frétt" RÚV birtist á miðvikudag. Þrátt fyrir að yfirlýsingar Samönthu Hegseth frá mánudegi og þriðjudegi séu á næstum hverri einustu fréttasíðu á netinu – einnig fréttasíðum aðgerðasinna af sama tagi og RÚV – fóru þær alveg framhjá fréttastofu RÚV. 
 
Að sögn lögfræðinga Pete Hegseth er Danielle Hegseth, nú Dietrich, „anti-Trump öfga-vinstri sinnuð Demókrati“ en staðhæfingar þeirra eru óþarfar. Danielle Dietrich hefur sjálf tekið af allan vafa um hvað býr að baki ásökunum hennar: „... ég hef verið fullvissuð um að þessi opinbera yfirlýsing mun tryggja að tilteknir öldungadeildarþingmenn sem enn eru óákveðnir muni greiða atkvæði gegn staðfestingu Hegseth."
 
Lög nr. 23/2013 um Ríkisútvarpið mæla skýrlega fyrir um hvernig stofnunin skuli haga upplýsingamiðlun og fréttaflutningi. Allir landsmenn vita að RÚV virðir þessi ákvæði stöðugt að vettugi í fréttum og í dagskrárgerð. Að Alþingi Íslendinga skuli láta starfshætti RÚV viðgangast átölulaust, ber vott um algjört virðingarleysi þingsins fyrir þjóðinni. 

Skildu eftir skilaboð