Hlaupadagskra.is – öll hlaup á einum stað

frettinFréttatilkynning, Heilsan, InnlentLeave a Comment

Á nýrri vefsíðu, Hlaupadagskra.is, má nú finna heildaryfirlit yfir öll staðfest og óstaðfest hlaup sem á Íslandi árið 2025. Fyrsta útgáfa af vefnum er þegar komin í loftið og inniheldur upplýsingar um hvorki meira né minna en 118 hlaupatengda viðburði – allt á einum stað!

Grunnhugmynd síðunnar er einföld: að safna saman öllum lykilupplýsingum um hlaup, flokka þau niður eftir tegund og vísa á viðeigandi skráningar- og upplýsingasíður, auk samfélagsmiðla. Þannig er hægt að veita hlaupurum áreiðanlegt yfirlit yfir það sem í boði er, hvort sem um ræðir götuhlaup, utanvegahlaup eða víðavangshlaup.

Af hverju Hlaupadagskra.is?

Markmiðið með síðunni er að leysa vandamál sem margir hlauparar hafa fundið fyrir – þörfina fyrir einfalda yfirsýn yfir alla hlauptengda viðburði ársins á einum stað. Þótt stórir viðburðir hafi hingað til verið vel kynntir á síðum eins og hlaup.is og netskraning.is, þá hefur mikil aukning í hlaupaviðburðum undanfarin ár – ekki sýst utanvegahlaupum eftir Covid – gert það erfitt fyrir hlaupara að fylgjast með öllu sem er í boði.

Sumir viðburðir eru auglýstir á hlaupavefsíðum eða samfélagsmiðlum, en aðrir eru smærri viðburðir sem oft tengjast bæjarhátíðum eða góðgerðarverkefnum og fer því minna fyrir. Það getur verið áskorun að finna upplýsingar og dæmi er um að hlauparar missi af skráningu þar sem viðburðir seljast upp á skottíma.

Á Hlaupadagskra.is eru hlaup skráð sem:

  • Staðfest (eða skráning hafin) – ef viðburðarhaldari hefur tilkynnt hlaup með ákveðinni dagsetningu.
  • Óstaðfest – ef þau hafa verið haldin áður og talin líkleg til endurtekningar.

Síðan er uppfærð reglulega efir því sem upplýsingar berast frá hlauphöldurum en að lágmarki í byrjun hvers mánaðar. Þannig munu hlauparar fái alltaf fá nýjustu upplýsingarnar á vefnum. Ábendingar um villur eða viðburði sem vantar á listann eru vel þegnar!

Nokkrar staðreyndir um Hlaupadagskra.is 2025:

  • 118 hlaupatengdir viðburðir eru á skrá, hver með fjölbreytt úrval vegalengda og keppna.
  • 56 hlaup hafa verið staðfest (skráning hafin).
  • Viðburðir á höfuðborgarsvæðinu: 52
  • Utanvegahlaup: 51
  • Hlaup sem veita ITRA-stig: 29
  • Lengsta hlaup ársins: >250 km
  • Þátttökugjöld: Frá 0 kr. upp í 55.000 kr.

Viðburðaflokkar eru fjölbreyttir: Götuhlaup, utanvegahlaup, víðavangshlaup, hindrunarhlaup og skemmtiskokk. Það er eitthvað fyrir alla – hvort sem þú ert byrjandi eða reyndur hlaupari.


Verkefni sprottið hlaupaástríðu

Hlaupadagskra.is er haldið úti af "stuttbuxnabræðrum" Tómasi G Gíslasyni, og Óskari Þór Þráinssyni, sem saman hafa varið tugum klukkustunda í að safna saman upplýsingum til að auðvelda hlaupurum lífið. Verkefnið er hluti af hópfjármögnunarverkefni á Karolinafund.com, sem stendur til 6. mars 2025.

Þér er boðið að styðja við verkefnið með framlagi á Karolinafund.com og hjálpa þannig til við að tryggja áframhaldandi uppfærslur á Hlaupadagskra.is – til hagsbóta fyrir alla hlaupara!

Takk fyrir að styðja við hlaupaástríðuna á Íslandi!

hlaupadagskra.is

Skildu eftir skilaboð