Robert F. Kennedy yngri stóð frammi fyrir öldungadeildarþingmanni Ron Wyden frá Oregon í umræðum á Bandaríska þinginu.
RFK Jr. bar vitni í morgun fyrir fjármálanefnd öldungadeildarinnar til að leggja fram mál sitt sem tilnefndur fulltrúi Trump í embætti heilbrigðis- og mannréttindaráðherra. Í þessari viku munu RFK Jr., Kash Patel og Tulsi Gabbard sitja undir svörum.
Patel og RFK verða líklega einhverjir umdeildustu embættismennirnir sem tilnefndir eru, sem forstjóri FBI og heilbrigðisráðherra.
Þingmaðurinn er sagður hafa verið ósvífinn og ætlaði sér frá upphafi að fremja mannorðsmorð á RFK Jr. með dylgjum sem standist enga skoðun. Hann sagði til að mynda að Kennedy hafi tekið upp samsæriskenningar sérstaklega þegar kemur að öryggi og virkni bóluefna,“ „Hann hefur gert það að ævistarfi sínu að sá efasemdir og letja foreldra frá því að fá börn sín lífsbjargandi bóluefnum
Þetta er sniðið á einhverjum sem eltir peninga og áhrif hvert sem þeir leiða, jafnvel þótt það gæti þýtt hörmulegan dauða barna og annarra viðkvæmra einstaklinga,“ sagði Wyden.
Kennedy segir þingmanninn fara með fleipur og ósannindi: „vegna þess að það hefur ítrekað verið afsannað að yfirlýsingin sem ég gaf í Lex Fridman Podcast var brot af yfirlýsingunni,“ sagði RFK Jr. og hvetur alla til að horfa á allt hlaðvarpið og hlusta á hvað hann segir í raun.
„Hann spurði mig hvort það væru til bóluefni sem væru örugg og áhrifarík og ég sagði við hann að sum veirubóluefni, væru ekki bóluefni og þar að leiðandi ekki örugg og áhrifarík fyrir einstaklinga.
„Öll lyf geta valdið aukaverkunum, og fólk er mis viðkvæmt fyrir þeim, og því ekki rétt að kalla þau alltaf örugg og áhrifarík,“ það sér einstaklega óheiðarlegt að setja þetta svona fram eins og þingmaðurinn gerir, segir Kennedy.
🚨BOOM🚨
RFK Jr. just completely dismantled Senator Ron Wyden's DISHONEST opening line of questioning:
"I‘ve corrected it MANY TIMES, including on national TV. You know about this, Senator Wyden, so bringing this up right now is dishonest." pic.twitter.com/L3MAxp3MTb
— Townhall.com (@townhallcom) January 29, 2025
Wyden hélt áfram og reyndi síðan aftur að koma höggstað á Kennedy með því að leggja fram bréf sem hann skrifaði til sóttvarnarstofnun Bandaríkjanna(FDA), til að hindra aðgang Bandaríkjamanna að COVID bóluefninu og framtíðaraðgangi að sprautuefnunum.
RFK svaraði því að „enn og aftur hefur hann uppi ósannindi, mikilvægt sé að hafa staðreyndirnar á hreinu“ og sagði:
„CDC mælti með COVID-bóluefni án vísindalegrar grundvallar fyrir sex ára börn. „COVID bóluefni eru óviðeigandi fyrir sex ára börn sem hafa í grundvallaratriðum enga áhættu af COVID. Þess vegna fór ég með þetta mál," segir Kennedy:
🔥 RFK Jr Debunks the "Anti-Vaxxer" Claims Made About Him
"You know about this, Senator Wyden, so bringing this up right now is dishonest." pic.twitter.com/JQUatWCG8P
— Chief Nerd (@TheChiefNerd) January 29, 2025
Wyden sakar Kennedy um að hafa valdið því að fólk á Samóa dó úr mislingum vegna þess að hann fór þangað til að dreifa lygum um mislingabóluefnið.
RFK Jr leiðrétti ósannindin
„Ég fór þangað til að kynna læknisfræðilegt upplýsingakerfi,“ sagði hann. „Ég talaði fyrir stafrænum skrám Samóa til að gera heilsufarsupplýsingar mun skilvirkari.
„Þetta hafði augljóslega ekkert með mislingana að gera … þegar vefjasýnin voru send til Nýja Sjálands [til greiningar] voru flestir ekki með mislinga,“ segir Kennedy.
RFK Jr. debunks Sen. Wyden's narrative that RFK Jr was responsible for 83 people dying from measles in Samoa:
"I had nothing to do with the measles... Tissues samples sent to new Zealand, most of those people did not have measles. We don't know what was killing them." pic.twitter.com/UdJ9fOLADd
— Media Research Center (@theMRC) January 29, 2025