Trump fyrirskipar að „woke“ hugmyndafræðin(DEI) verði stöðvuð í hernum og kallar aftur inn hermenn sem neituðu COVID bóluefnum

frettinErlent, Stjórnmál, TrumpLeave a Comment

Donald Trump forseti ætlar fljótlega að undirrita framkvæmdaskipanir um að kalla til baka bandaríska hermenn sem voru reknir fyrir að neita að taka COVID-19 bóluefni. Forsetinn ætlar einnig stoppa woke hugmyndafræðina (DEI) innan hersins, DEI er skammstöfun fyrir FJI á íslensku og þýðir: fjölbreytileiki, jafnrétti og inngilding. Það var varnarmálaráðherrann Pete Hegseth sem greindi frá málinu á mánudag.

Hegseth staðfesti að fyrirskipanir Trumps, þegar hann ræddi við blaðamenn. Öldungadeildin staðfesti naumlega fréttirnar í framhaldi.

Væntanlegar framkvæmdaskipanir Trumps fyrir Pentagon munu uppfylla kosningaloforð sem repúblikaninn ítrekaði í setningarræðunni í síðustu viku. „Hernum okkar verður frjálst að einbeita sér nú að sínu eina verkefni, að sigra óvini Bandaríkjanna,“ sagði Trump í innsetningarræðu sinni.

Áætlanir forsetans marka áberandi andstæðu milli Trump og forvera hans, Joe Biden, um bestu starfsvenjur til að takast á við heimsfaraldurinn. Margir í repúblikanaflokknum hafa gagnrýnt viðmiðunarreglurnar sem notaðar eru til að berjast gegn COVID-19, sérstaklega lokunum sem lokuðu fyrirtækjum og lokuðu skólum í marga mánuði.

Árið 2021 fyrirskipaði þáverandi varnarmálaráðherra Lloyd Austin bólusetningarskyldu fyrir hermenn gegn COVID-19 nema þeir hefðu tryggt sér undanþágu, svo sem af trúarlegum ástæðum. Pentagon afturkallaði fyrirskipunina árið 2023 eftir fyrirmælum frá þinginu en þá höfðu um 8.000 hermenn verið vikið frá störfum.

Trump gagnrýndi ákvörðun ráðherrans við embættistöku sína og sagði að þeir sem höfnuðu sprautuefninu hafi verið „með óréttmætum hætti reknir úr hernum“.

Hegseth bætti við á mánudag að búist væri við að önnur framkvæmdaskipun myndi útrýma fjölbreytileika-, jafnréttis- og inngildingaráætlunum í Pentagon. Þetta kemur viku eftir að Trump skrifaði undir fjölda framkvæmdafyrirmæla sem lokuðu DEI skrifstofum í öllum sviðum og afturkallaði einnig borgararéttaraðgerðir sem settar voru af Biden stjórninni til að binda enda á mismunun við ráðningar og sögð ætluð  skapa jöfn atvinnutækifæri.

USA today greinir frá.

Skildu eftir skilaboð