Úthlutun styrkja menningar, íþrótta- og tómstundaráðs Reykjavíkurborgar á sviði menningarmála og útnefning Listhóps Reykjavíkur 2025 fór fram í Iðnó í dag fimmtudaginn 30. janúar að viðstöddu fjölmenni. Formaður ráðsins, Skúli Helgason, gerði grein fyrir úthlutuninni.
Alls bárust 225 umsóknir um styrki úr borgarsjóði á sviði menningarmála síðastliðið haust, þar sem sótt var um styrki fyrir tæplega 390 milljónir króna vegna verkefna á árinu 2025. Aldrei hafa fleiri umsóknir borist um styrki á sviði menningarmála úr borgarsjóði, sem endurspeglar hina miklu grósku sem einkennir reykvískt menningarlíf.
Ráðstöfunarfé til úthlutunar styrkja og samstarfssamninga úr borgarsjóði á sviði menningarmála fyrir árið 2025 var samtals 110.600.000 kr. Þar af voru 39 m.kr. bundnar í þegar gerða eldri samstarfssamninga, og því hafði faghópurinn 71.600.000 kr. til ráðstöfunar í nýja styrki og til Listhóps Reykjavíkur. Menningar-, íþrótta- og tómstundaráð hefur undanfarin misseri unnið markvisst að hækkun styrkja til menningarmála í þrepum þar sem ráðstöfunarfé til almennra styrkja og samstarfssamninga hefur verið hækkað um 15 milljónir króna á ári undanfarin tvö ár og til stendur að hækka upphæðina enn á komandi ári.
„Við leggjum mikið uppúr þessum áfangasigrum því þessar hækkanir á fjárhæðum til menningarstyrkja eru bráðnauðsynleg næring fyrir grasrótina í menningarborginni til hliðar við metnaðarfullt starf okkar öflugu menningarstofnana,“ segir Skúli Þór Helgason, formaður menningar-, íþrótta- og tómstundaráðs.
Alls hljóta 96 umsótt verkefni á sviði lista og menningar styrkúthlutun úr borgarsjóði á þessu ári, auk þess sem fjórtán samstarfssamningar eru nú þegar í gildi við Sequences myndlistarhátíð, Lókal leiklistarhátíð, Myrka músíkdaga, listhópinn Reykjavík Ensemble, Myndhöggvarafélagið í Reykjavík, Stórsveit Reykjavíkur, listarýmið Mengi, kvikmyndahátíðina Stockfish, Bókmenntahátíð í Reykjavík, sirkusfélagið Hringleik, Jazzhátíð Reykjavíkur, kammerhópinn Nordic affect, Reykjavík Fringe festival og listahátíðina List án landamæra.
Þá eru ótaldar þær sex svonefndu borgarhátíðir Reykjavíkur sem í ár ljúka sínu síðasta ári samkvæmt núgildandi þriggja ára samningi, en þetta eru Hinsegin dagar, Hönnunarmars, Iceland Airwaves, Óperudagar, Reykjavík Dance Festival og RIFF, en þessar hátíðir hljóta hver um sig 5 til 10 milljónir árlega í styrk frá Reykjavíkurborg.
Reykjavíkurborg rekur ennfremur þrjár sjálfstæðar og afar öflugar menningarstofnanir, Borgarbókasafn, Listasafn Reykjavíkur og Borgarsögusafn Reykjavíkur, en þar að auki fara hæstu framlög Reykjavíkurborgar til menningarmála í borginni til Leikfélags Reykjavíkur í Borgarleikhúsi, Sinfóníuhljómsveitar Íslands og Hörpu tónlistar- og ráðstefnuhúss. Jafnframt njóta ýmsir sjálfstæðir aðilar húsnæðis- og rekstrarstyrkja frá Reykjavíkurborg á borð við Listahátíð í Reykjavík, Tjarnarbíó, Dansverkstæðið, Bíó Paradís, Nýlistasafnið og Kling og Bang.
Listhópur Reykjavíkur 2025 er Open listamannarekið sýningarrými, sem hefur verið hreyfiafl í íslensku myndlistarsenunni frá því að það opnaði dyr sínar á Grandanum fyrir nokkrum árum. Sýningarrýmið hefur staðið fyrir myndlistarsýningum og fjölbreyttum uppákomum sem litast af þverfaglegu samstarfi og leitast við að sýna verk eftir áhugaverða listamenn sem jafnvel hafa ekki hlotið verðskuldaða athygli innan myndlistarsenunnar eða tilheyra einhvers konar jaðarhópum. Open hlýtur 2.5 milljónir króna í styrk á árinu 2025 auk hinnar formlegu nafnbótar „Listhópur Reykjavíkur 2025“.
Hæstu styrkúthlutun ársins fyrir utan Listhópinn hlýtur Kammersveit Reykjavíkur sem hlýtur styrk uppá 2,5 m.kr. en sveitin fagnar 50 ára starfsafmæli á árinu og hyggur á fjölbreytt og viðamikið tónleikahald af því tilefni. Barnasviðslistahátíðin Ungi hlýtur 2 milljónir króna og 1 og hálfa milljón í styrk hljóta Alþjóðleg barnakvikmyndahátíð í Reykjavík sem haldin er ár hvert í Bíó Paradís, óperan Lucia di Lammermoor sem Listhópur Reykjavíkur árið 2024, sviðslistahópurinn Óður, hyggst setja upp, hin rótgróna tónleikaröð Jazzklúbbsins Múlans í Hörpu og ráðstefnan Design Talks, sem er einn metnaðarfyllsti viðburðurinn á borgarhátíðinni Hönnunarmars. Aðrar styrkúthlutanir á árinu 2025 eru frá 250.000 kr. og upp í 1.2 milljónir króna.
Samkvæmt venju var faghópi skipuðum fjórum fulltrúum tilnefndum af Bandalagi íslenskra listamanna og einum tilnefndum af Miðstöð hönnunar og arkitektúrs, falið að fara yfir innkomnar styrkumsóknir á sviði menningarmála fyrir árið 2025 og leggja fram tillögu að úthlutun fyrir menningar-, íþrótta- og tómstundaráð. Hópinn í ár skipuðu Elín Hrund Þorgeirsdóttir, formaður, Elvar Bragi Kristjónsson, Gunnar Andreas Kristinsson, Helga Guðrún Óskarsdóttir og Margrét Bjarnadóttir.
Lista yfir alla styrkþega 2025 má finna hér neðar: