Trump sendir „róttæka brjálæðinga“ hjá USAID í leyfi – Musk segir stofnunina fjármagna rannsóknastofur efnavopna sem þróuðu Covid-19

frettinErlent, TrumpLeave a Comment

USAID, utanríkishjálparstofnunin sem margir líta á sem útibú fyrir starfsemi CIA, er í róttækri upplausn vegna tilskipanna Donald J. Trump Bandaríkjaforseta og DOGE hans undir forystu Elon Musk.

Tveir æðstu embættismenn voru settir í leyfi eftir að hafa reynt að koma í veg fyrir að Musk fengi aðgang að trúnaðarupplýsingum, eftir það eyddi stofnunin X aðgangi sínum með yfir 1. milljón fylgjendum og vefsíðan einnig lögð niður:

Trump forseti og Musk hafa mikið látið til sín taka að undanförnu í baráttunni við "WOKE" pólitískan rétttúnað og eru þessa daganna að afhjúpa umfang hjálparstofnanna sem hafa villt á sér heimildir.

Musk skrifar á X að USAID stofnunin sé glæpasamtök:

Musk deildi einnig færslu X notanda þar sem hann bendir á að USAID hafi úthlutað 53 milljónum dala til hinu alræmda EcoHealth Alliance, sem notaði fé bandarískra skattgreiðenda til að styðja við „gain-of-function“ rannsóknir  og þróun á Covid veirunni á Wuhan rannsóknarstofunni - rannsóknir sem þykir benda til þess að Covid breiddist út um allan heim, eftir að hleypt var út vísvitandi af rannsóknarstofunni.

Málið hefur vakið mikla athygli um allan heim. Nayib Bukele, forseti El Salvador, tók einnig þátt í umræðunum:

Skildu eftir skilaboð