Baráttan um buxurnar

frettinInnlent, Jón Magnússon1 Comment

Jón Magnússon skrifar:

Jón Gnarr þingmaður Viðreisnar lét til sín taka á löggjafarþingi þjóðarinnar í vikunni. Í fyrsta lagi náði hann að stela athyglinni með því að gera mikið veður út af því að hann hefði klæðst í gallabuxur.  Fréttastofu RÚV fannt það aðalatriðið í fréttaflutningi frá Alþingi í gær. Þó var sérstök umræða um strandveiðar. 

Jón Gnarr var að vandræðast með það, hvort hann væri klæddur að heldri manna sið og í samræmi við það sem eðlilegt er á Alþingi, þegar  hann skrýddist gallabuxunum. Í sjálfu sér átti þessi sjálfhverfa sýniþörf Jóns Gnarr lítið erindi við almenning. 

Þessi umræða er ekki ný, en RÚV finnst hún alltaf jafn merkileg. Einfaldleiki málsins varðandi klæðaburð alþingismanna er að það er ekki skylda að vera í einkennisbúningi heldur snyrtilega klæddur. Sumir róttækir þingmenn, sem hafa lítið til málanna að leggja annað en vekja á sér athygli, hafa iðulega mætt eins og skítakamrar til fara og talið það innlegg í þjóðmálabaráttuna. Með því eru þeir að gera lítið úr sjálfum sér og draga úr virðingu Alþingis.

En Jón Gnarr náði að auglýsa gallabuxurnar sínar vel og öllu minni athygli vakti samt ræða hans um strandveiðar, þar sem hann minntist á það í upphafi umræðnanna að hann hefði raunar ekkert vit á strandveiðum og vissi meira um landbúnaðarmál. Að sjálfsögðu var því við hæfi að þingmaðurinn blandaði sér í umræðuna sem hann segist ekkert vit hafa á. En óháð þessu sjálfsmati Jóns Gnarr, þá var ræða hans um strandveiðar mun betri en hugsvölun sýniþarfar hans á gallabuxunum sínum.

One Comment on “Baráttan um buxurnar”

  1. Ég fer að furða mig á því kvurt að þíngmenn yfir höfuð viti til hvers þeir eru kostnir???Allavega ekki vegna val á klæðaburði, ég myndi alveg vilja vera á þessum launum og ræða um fatnað……Hólí Mólí að maður skuli yfir höfuð hafa tekið þátt í að kjósa til alþíngis….

Skildu eftir skilaboð