Oddvitar Samfylkingar, Pírata, Sósíalista, Flokks fólksins og Vinstri grænna kynntu í dag í Ráðhúsinu í dag, föstudag 21. febrúar kl. 15:50, samstarfssáttmála flokkanna.
Að tillögu nýs meirihluta verður Heiða Björg Hilmisdóttir nýr borgarstjóri Reykjavíkur, Sanna Magdalena Mörtudóttir verður forseti borgarstjórnar, Dóra Björt Guðjónsdóttir og Líf Magneudóttir skiptast á að gegna embættum formanns borgarráðs og formanns umhverfis- og skipulagsráðs á tímabilinu og Helga Þórðardóttir verður formaður skóla- og frístundaráðs.
Hröð húsnæðisuppbygging og örugg heimili fólks eru lykilmál nýs samstarfs í borginni. Efnt verður til sameiginlegrar vinnu Reykjavíkur og verkalýðsfélaga með það að markmiði að stofna félag um þróun nýrra svæða og fara nýjar leiðir við skipulag, uppbyggingu innviða og fjármögnun þeirra.
Hafin verður strax skipulagning fjölbreyttrar uppbyggingar á nýju landi fyrir allt að tíu þúsund íbúðir í Úlfarsárdal og víðar í samstarfi við verkalýðshreyfinguna og óhagnaðardrifin félög.
Markmiðið er að auka ferðatíðni Strætó og bæta þjónustu við farþega, meðal annars með vönduðum biðstöðvum.
Nýr meirihluti leggur áherslu á að forgangsraða grunnþjónustu, fara betur með tíma og fjármuni borgarinnar og sýna ráðdeild í rekstri.
Þá verður farið í vinnu gegn fátækt og ójöfnuði m.a. með áherslu á heimili á félagslegum forsendum og að stórauka félagslegt leiguhúsnæði miðað við núverandi áætlanir.
Skólaþjónusta verður efld með fjölgun sérfræðinga svo sem með talmeinafræðingum og brugðist skjótt við þegar barn í viðkvæmri stöðu þarf stuðning. Þá verður leikskólaplássum fjölgað verulega með opnun nýrra leikskóla og stækkun eldri leikskóla án þess að taka skref í átt að fyrirtækjavæðingu.
Hér má sjá samstarfsyfirlýsinguna í heild sinni: