Töluverðs tvískinnungs hefur gætt að undanförnu hjá forsetaembættinu varðandi kynferðisáreitni sem starfsmaður varð fyrir af hálfu annars starfsmanns í forsetabústaðnum að Bessastöðum. En tveir meintir þolendur hröktust úr starfi sínu þar vegna stöðugrar kynferðisáreitni af hálfu annars starfsmanns. Forsetinn Guðni Th. Jóhannesson hefur ítrekað fordæmt ofbeldi opinberlega og því óskiljanleg niðurstaða að gerandinn sjálfur hafi verið að störfum nær óslitið í forsetatíð Guðna. Málið kom fyrst upp árið 2019 og var fjallað um í Fréttablaðinu.
Forsetinn sagði svo orðrétt í viðtali við RÚV nýlega:
Heiðri fylgir ábyrgð
„Það er mikill heiður að koma fram fyrir Íslands hönd, að vera fulltrúi Íslands, hvort sem það er í íþróttum eða á öðrum vettvangi. Þeim heiðri fylgir ábyrgð, fylgir sú skylda að haga sér sómasamlega, að vera ekki fáviti. Nú búum við svo um hnútana að við lærum af reynslunni og horfum björtum augum fram á veg. Þá verður gott að búa í þessu landi,“ segir Guðni.
Þetta sjónarmið er gott og gilt og flestir geta sammælst um að fordæma ofbeldi í hvaða formi sem er, en í ljósi þessarar afstöðu forsetans væri þá ekki eðlilegt að hann tæki sjálfur á kynferðisbrotum sem hafa átt sér stað á undanförnum árum á heimili hans og innan embættisins, en forsetahjónin virðast ekki sjá ástæðu til þess og þykir mörgum það orka tvímælis og spyrja sig hvort forsetahjónin séu gerandameðvirk?
Meintur gerandi hefur verið kærður til lögreglu og er þrátt fyrir það enn að störfum samkvæmt yfirlýsingu sem kemur frá embættinu nýlega og var fyrst fjallað um í grein sem birt var í Fréttablaðinu:
"Gerandinn, sem er karlmaður, fékk skriflega áminningu frá forsetaembættinu eftir Parísarferðina. Hann baðst afsökunar og var sendur í tímabundið leyfi. Kom það þolandanum í opna skjöldu að hann skyldi fá að snúa aftur til starfa.
Hann telur sig ekki hafa fengið viðeigandi málsmeðferð innan forsetaembættisins. Í sumar sagði hann upp starfinu og leitaði til Stígamóta. Síðar kærði hann málið til lögreglu.
Sif Gunnarsdóttir forsetaritari segir að starfsmanninum hafi verið heimilað að snúa aftur til starfa að uppfylltum tilteknum skilyrðum. Þar með hafi málinu verið lokið hjá embættinu."