Skúli Magnússon umboðsmaður Alþingis hefur verið beðinn álits á synjun heilbrigðisráðuneytisins og staðfestingu úrskurðarefndar um upplýsingamál þar á, um aðgang íslensks ríkisborgara að þeim samningum sem íslenska ríkið hefur gert við lyfjafyrirtækin um bóluefnakaup. Meðal annars segir úrskurðarnefndin að þó almenningur eigi almennt ríkan rétt á að kynna sér samninga hins opinbera við einkaaðila sem fela í sér ráðstöfun opinbers fjármagns, þá eigi það ekki við í þessu tilfelli vegna hagsmuna samningsaðila og opinberun gæti meðal annars raskað afhendingu bóluefnanna.
Þess má geta að nokkra þessara samninga er þegar að finna á veraldarvefnum, t.d. samning ESB ríkjanna við Pfizer sem finna má hér.
Samningurinn er merktur „viðkvæmur" á flestum blaðsíðum en ekki „trúnaðarmál". Á bls. 54 í samningnum má til dæmis lesa að að líkurnar á að framleiðsla virks bóluefnis misheppnist séu mjög miklar eða:
„Samningsaðilar skilja að þróun öruggra og virkra bóluefna er afar flókin framkvæmd og líkurnar á að hún misheppnist eru mjög miklar. Þess vegna verða gerðir fyrirframgreiddir kaupsamningar við nokkra leiðandi bóluefnaframleiðendur, til að hámarka líkurnar á að fá a.m.k eitt öruggt bóluefni."
Samningurinn er undirritaður í nóvember 2020 en í sama mánuði segir forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar að bóluefni Pfizer lofi feikilega góðu og komi í veg fyrir smit í um 90% tilfella eða orðrétt:
„Þetta bóluefni hefur alltaf þótt feikilega lofandi," segir Kári um fregnir af bóluefni sem framleitt er af lyfjafyrirtækinu Pfizer og líftæknifyrirtækinu BioNTech. Hefur bóluefnið í 90% tilvika komið í veg fyrir Covid-19-smit í þriðja fasa lyfjaþróunarinnar. „Það þykir feikilega góður árangur, betri en árangurinn af flestum inflúensubóluefnum. Því er þetta afskaplega góð niðurstaða.“ mbl.is
Rannsóknirnar sem forstjórinn vísar í virðast því engan veginn endurspegla raunveruleikann því eins og komið hefur fram koma lyfin ekki í veg fyrir smit eða leiða til ónæmis eins og almennt gerist með hefðbundin bóluefni. Ef eitthvað er virðast þau jafnvel ýta undir smit sbr. þessa mynd.