Tilkynntar aukaverkanir vegna Covid bólusetninga eru nú 3210, þar af 205 alvarlegar. Tilkynningum um alvarlegar aukaverkanir hefur því fjölgað um fjórar frá því í síðustu viku.
Alvarleg aukaverkun er skilgreind sem óæskileg áhrif lyfs sem leiðir til dauða, lífshættulegs ástands, sjúkrahúsvistar eða lengingar á sjúkrahúsvist, veldur fötlun eða fæðingargalla hjá mönnum.
Hér er sundurliðuð tilkynning frá Lyfjastofnun.
Ekki hefur fengist svar frá Lyfjastofnun hversu margar tilkynningar hafa borist í aldurshópnum 12-15 ára en síðari bólusetning hjá þeim hópi er nánast lokið.