90% af áætlaðri sölu BioNTech 2024 spáð á Q4

frettinErlent, Viðskipti, Þorgeir EyjólfssonLeave a Comment

Þorgeir Eyjólfsson skrifar:

Afkomuspá BioNTech gerir ráð fyrir að 90% af sölutekjum ársins falli til á fjórða ársfjórðungi. Spáin er hluti af afkomutilkynningu fyrirtækisins fyrir fyrsta ársfjórðung sem sýndi sölusamdrátt upp á 86% miðað við sama fjórðung á árinu 2023. Helsta framleiðsluafurð BioNTech er covid mRNA bóluefnið sem það framleiðir í samstarfi við Pfizer og sem sóttvarnalæknir hefur notað við bólusetningar hér á landi.

Að fyrirtækið geri ráð fyrir að eftirspurn eftir mRNA bóluefni fyrirtækisins verði í líkingu við það þegar Covid-19 náði hápunkti bendir til að stjórnendur lyfjaframleiðandans viti af fyrirætlun um sleppingu á nýju skaðlegu afbrigði covid veirunnar.

Fljótlega mun koma í ljós hvort landsmenn meti það áhættunnar virði að þiggja á nýjan leik bólusetningu með covid mRNA efni þar sem flestir hafa orðið vitni að skaða á heilsu ættingja, vina eða samstarfsmanna sem talið er að rekja megi til bóluefnanna.

Birt með góðfúslegu leyfi höfnundar.

Skildu eftir skilaboð