Þorgeir Eyjólfsson skrifar:
Ekki er að finna hliðstæð opinber gögn hér á landi um bólusetningarstöðu látinna landsmanna eins og Tékkneska hagstofan hefur afhent fyrirspyrjanda á grundvelli þarlendra upplýsingalaga (sjá fyrri færslu). En með hlutfallsreikningi fjölda bólusetninga eftir framleiðendum og tilkynntum aukaverkunum má gera grófan samanburð á skaðsemi efnanna.
Taflan sýnir að íslenska reynslan af notkun Moderna er því ekki ósvipuð þeirri Tékknesku (þó ekki mælt í dauðsföllum eins og þar í landi) þar sem aukaverkanir af völdum Moderna reyndust 80% fleiri pr. 1.000 sprautur en af völdum Pfizer.
Tölur Lyfjastofnunar um tilkynntar aukaverkanir benda til þess að þeir sem þáðu AstraZeneca hafi verið liðlega tvöfalt líklegri til að skaðast en hefðu þeir fengið Pfizer. Taflan skýrir hvers vegna hætt var að mestu að sprauta með Janssen þegar í júlí 2021.
Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.