Ísland skólabókardæmi á heimsvísu um líklegt orsakasamband

frettinInnlent, Rannsókn, Þorgeir Eyjólfsson1 Comment

Þorgeir Eyjólfsson skrifar:

Ísland er á meðal 110 landa af 125 löndum í nýrri rannsókn þar sem ítarleg gögn um bólusetningar ásamt upplýsingum um dauðsföll voru fyrirliggjandi og aðgengileg rannsóknaraðilum.

Í löndunum 110 (án undantekninga) var fylgnin milli bólusetninga og fjölgun dauðsfalla augljós. Klippan sýnir fylgni bólusetninga og dauðsfalla á Íslandi og er landið í hópi þjóða þar sem fjölgun dauðsfalla í kjölfar örvunarbólusetninga seinni part árs 2021 er greinileg en dauðsföllum fjölgaði mikið hérlendis og náðu þau hámarki í mars 2022. Ísland hefur um margra mánaða skeið verið í hópi þeirra þjóða Evrópu sem flest hafa umframdauðsföllin.

Niðurstöður óvenju stórrar rannsóknarinnar greina áhrif misráðinna sóttvarnaviðbragða stjórnvalda víða um heim og hvernig þau leiddu til fjölgunar dauðsfalla. Hvergi í heiminum fækkaði dauðsföllum í kjölfar bólusetninga gegn Covid og telja rannsakendur auðsætt að fullyrðing þess efnis að bóluefnin hafi bjargað milljónum mannslífa eigi ekki við rök að styðjast.

Birt með góðfúslegu leyfi höfundar.

One Comment on “Ísland skólabókardæmi á heimsvísu um líklegt orsakasamband”

Skildu eftir skilaboð