Helga Dögg Sverrisdóttir skrifar:
Í Ástralíu eru margir þingmenn þjóðinni til skammar. Þeir leyfa hinsegin hópum að vaða yfir réttindi kvenna. Það er ein sem lætur sig málið varða, Pauline Hansen. Á síðunni hennar má lesa þetta.
Þakkir til Andrew Bolt fyrir að fá mig til að tala um frumvarpið mitt. Í því felst að við endurheimtum hugtökin ,,karl" og ,,kona" í líffræðilegum skilgreiningum sínum, eitthvað sem Verkamannaflokkurinn og Græningjar vilja loka á í þinginu.
Ég held að margir Ástralir séu réttilega hneykslaðir að sjá Verkamannaflokkinn og Græningja halda áfram að vera á móti því að verja réttindi kvenna og standa með heilbrigðri skynsemi.
Í gegnum árin hef ég staðið frammi fyrir endalausum árásum fyrir að segja það sem margir eru rétt að byrja að átta sig á, að þessi þjóð hafi verið á rangri leið.
Hvort sem það er um innflytjendamál, fjölmenningu eða að verja réttindi venjulegra Ástrala, þá hef ég alltaf staðið fast á því og oftar en ekki hef ég haft rétt fyrir mér.
Svo takk aftur, Andrew, fyrir að minna fólk á afrekaskrá mína og gefa mér tækifæri til að tala frjálslega og standa með venjulegum Áströlum.
Hér má sjá viðtalið.
Á Íslandi er sami vandi uppi. Þingmenn passa ekki upp á réttindi kvenna. Íslendingum vantar konur á þing sem ber hag kvenna fyrir brjósti. Þær sem fyrir eru virðast heillum horfnar þegar kemur að réttindunum sem konur höfðu.
One Comment on “Íslendingum vantar svona kvenmann á þing – við eigum engar þingkonur sem eru málsvarar kvenna”
Ekki að það skipti máli fyrir efnisinnihaldi en þá stakk mig svolítið að sjá “Íslendingum vantar” í uppafi fyrirsagnar.
Tekur “vantar” ekki með sér þolfall? Er kannski hvort tveggja rétt?