Páll Vilhjálmsson skrifar:
Í viðtengdri frétt er viðtal við Stefán Eiríksson útvarpsstjóra RÚV. Þar segir:
„Málið snýr að rannsókn lögreglu sem lokið er með niðurfellingu málsins og þar með lokum þess, nema þeirri ákvörðun verði snúið við,“ skrifar Stefán í skilaboðum til blaðamanns en tekur fram að það sé ekkert tengt þessu máli sem hann þurfi að ræða.
Í yfirlýsingu sem fylgdi niðurfellingu byrlunar og símastuldsmálins segir lögreglan á Norðurlandi eystra:
Í júlí síðastliðnum upplýsti sakborningur um að hafa afhent fréttamanni RÚV símann í húsnæði RÚV í Reykjavík. Sá hafi kallað til annan starfsmann RÚV sem tók við símanum og fór með hann til þriðja aðila sem hann gat ekki upplýst um hver hefði verið. Þessir starfsmenn RÚV hefðu verið með símann í sólarhring og sakborningur hefði komið daginn eftir á RÚV og fengið símann afhentan aftur.
Stefán útvarpsstjóri segir ,,ekkert tengt þessu máli sem hann þurfi að ræða." Útvarpsstjóri telur sjálfsagt að starfsmenn RÚV séu í sambandi við byrlara út í bæ, fái frá honum stolinn síma og afriti með leynd. Taki síðan stolin gögn og komi á framfæri við valda fjölmiðla til að valda miska og meiðingum.
Aðeins leyniþjónustur og hryðjuverkasamtök haga sér með þessum hætti.
Hvað er út í kaffinu á Efstaleiti?