Elon Musk, gerði vinstrisinnaða fjölmiðla víða umheim ævareiða er hann birtist skyndilega á skjánum á fjöldafundi hægrisinnaða stjórnmálaflokksins AfD í Þýskalandi og ávarpaði þar stuðningsfólk.
Ríkisfjölmiðlar fjölluðu ekkert um ræðu Musk, en tóku þess í stað viðtöl við Antifa samtökin sem héldu sig fyrir utan staðinn.
Musk kvaðst vera mjög spenntur fyrir AfD og telur flokkinn besta von Þýskalands.
„Ég held að sé mjög mikilvægt séu að fólk sé stolt af Þýskalandi og því að vera Þjóðverji. Þetta er mjög mikilvægt.
Þið vitið, það er allt í lagi að vera stoltur af því að vera þýskur, þetta er mjög mikilvæg meginregla.
Það er gott að vera stoltur af þýskri menningu og þýskum gildum og missa það ekki í einhvers konar fjölmenningu sem þynnir út allt,“ sagði Musk.
Alice Weidel formaður AfD deildi ræðunni á X:
Elon Musk‘s great speech at our party convention! Make America & Germany great again! 🇺🇸🇩🇪 pic.twitter.com/XHtMIBfOYh
— Alice Weidel (@Alice_Weidel) January 26, 2025
Of mikið eftirlit frá heimselítu í Brussel
„Börn eiga ekki að vera sek um syndir foreldra sinna eða langafa sinna jafnvel.
Þið eigið að vera bjartsýnn og spennt fyrir framtíð Þýskalands. Það eru í raun skilaboðin mín, verið bjartsýn, spennt, varðveitið þýska menningu og verndið þýsku þjóðina.
Það eru nokkrir aðrir hlutir sem ég held að sé mjög gagnlegt líka, það er að ef þú vilt meiri sjálfsákvörðunarrétt fyrir Þýskaland og fyrir löndin í Evrópu, minnkið þá Brussel.
Ég held að það sé of mikið skrifræði frá Brussel, of mikið eftirlit frá heimselítu. Þegar ég hef haldið fyrirlestra á þessum alþjóðlegu ríkisstjórnarráðstefnum, það sem ég hef sagt er að það ætti að vera minna af alþjóðlegum stjórnvöldum. “
Og svo vona ég mjög að AfD standi sig vel og að Alice Weidel verði kanslari. Ég held að það yrði mjög gott fyrir Þýskaland, kosningar í Þýskalandi og gætu ráðið örlögum heimsins“ segir Musk.
Einhverjir fjölmiðlar gerðu lítið úr Alice og kölluðu hana klappstýru Elon Musk, en hún þykir hafa svarað vel fyrir sig, eins og má sjá hér neðar:
🚨🇩🇪 WHAT ALICE WEIDEL REALLY THINKS ABOUT ELON MUSK 😳
AfD chancellor candidate Alice Weidel was mocked as an “Elon Musk fangirl” after their 𝕏 space went viral.
She shuts down the haters with her usual coolness:
“I am a fangirl of free speech” 🫳🏻🎤 pic.twitter.com/7c5eL9UtGm
— Naomi Seibt (@SeibtNaomi) January 23, 2025