Landspítalinn hefur sent út kynningarbréf um rannsókn á vegum spítalans undir heitinu "Áhrif Covid-19 bólusetningar á hjartastarfsemi með aðaláherslu á sjúkdóma í gollurhúsi, hjartavöðva, eða hjartsláttartruflanir."
Helgi Örn Viggósson tjáir sig um málið í hópnum Kóvid uppgjörið á Facebook:
„Ábyrgðarmaður rannsóknarinnar er Inga Jóna Ingimarsdóttir, hjartalæknir og sérfræðingur í hjartabilun og samverkamenn hennar eru 6 læknar og 3 læknanemar.
Gefnar hafa verið út vel á annað þúsund ritrýnar rannsóknargreinar um skaðsemi "bóluefnanna" á hjartað, þannig að það er kannski ekki í frásögur færandi að ein slík bætist í bunkann nema fyrir að hér er um íslenska rannsókn að ræða.
Hér á landi hefur þöggunin um skaðsemi tilraunaefnanna verið meiri en í nokkru öðru lýðræðisríki og talsmenn íslenska læknasamfélagins sakað þá sem hafa haldið henni á lofti um að vera samsæriskenningasmiði sem viti ekkert í sinn haus. Skv. þessu virðist þetta að vera breytast af einhverjum ástæðum.
Fróðlegt verður að sjá niðurstöðurnar og bera þær saman við aðrar rannsóknir sem fjalla um það sama. Ef einhver hér veit meira um þessa rannsókn og framgang hennar mætti viðkomandi endilega fræða okkur hin,“ skrifar Helgi.

Kynningarbréfið má sjá hér neðar: