Innköllun á Brown Beans vegna skordýra sem fundust í vörunni

frettinFréttatilkynning, Heilbrigðismál, InnlentLeave a Comment

Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur, hefur stöðvað sölu og innkallað frá neytendum Brown Beans vegna skordýra sem fundust í vörunni. Þetta kemur frá í fréttatilkynningu frá Reykjavíkurborg. 

Viðskiptavinum sem hafa keypt vöruna er bent á að neyta hennar ekki og farga, einnig er hægt að skila vörunni í verslun þar sem varan var keypt.

Upplýsingar um vöru sem innköllunin einskorðast við:

  • Vörumerki: MP People‘s Choice
  • Vöruheiti: Brown Beans
  • Geymsluþol: 30.11.2025
  • Batch No. MP122023
  • Strikamerki: 37209122570 / 2201111111366
  • Nettómagn: 1 kg og 2 kg
  • Ábyrgðaraðili: A.E.F B.V. Kilbystraat 1, 8263 CJ Kampen, The Netherlands
  • Framleiðsluland: Nígería

Heiti og heimilisfang fyrirtækis sem innkallar vöru:

DJQ Beauty Supply, Hraunberg 4

Dreifing:
DJQ Beauty Supply, Hraunberg 4

Skildu eftir skilaboð