Yfirlýsing stjórnar Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi

frettinFréttatilkynning, InnlentLeave a Comment

Stjórn Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi segir forsendur kjarasamnninga í greininni kunna að bresta verði fyrirætlanir stjórnvalda um breytingar í sjávarútvegi að veruleika.

„Stjórn SFS lýsir áhyggjum af rekstrarskilyrðum í sjávarútvegi og fyrirætlunum stjórnvalda um verulegar breytingar er lúta að atvinnugreininni. Aukning strandveiða, hækkun veiðigjalds, hækkun kolefnisgjalds og frekari takmarkanir á eignarhaldi þyngja verulega róðurinn. Sjávarútvegur keppir á útivelli í erfiðri alþjóðlegri samkeppni, við ríkisstyrktan sjávarútveg annarra þjóða, og hefur þar enga stöðu til þess að velta kostnaðarhækkunum heima fyrir út í verð afurða. Fram hjá þessari stöðu má ekki horfa.

Þrátt fyrir áherslu í orði á aukna verðmætasköpun lykilatvinnuvega í stefnuyfirlýsingu nýrrar ríkisstjórnar virðast fáar aðgerðir eða hugmyndir liggja þar að baki. Með því að vega að samkeppnishæfni atvinnugreinar sem leggur þung lóð á vogarskálar hagvaxtar og góðra lífskjara hér á landi er leiðin vörðuð að minni ávinningi samfélagsins af nýtingu sjávarauðlindarinnar.

Það er í þessu samhengi umhugsunarefni að langtímakjarasamningar hafa verið gerðir við bæði sjómenn og landverkafólk, í krafti þess að aukin verðmætasköpun og framleiðni geti staðið undir skuldbindingum samninganna. Þær forsendur kunna að bresta ef kynntar fyrirætlanir ríkisstjórnar ganga eftir,“ segir í fréttatilkynningu frá SFS.

Skildu eftir skilaboð