Justin Trudeau, forsætisráðherra Kanada, lýsti því yfir á Twitter að Kanada styddi eindregið fólk sem tjáir sig og mótmælir friðsamlega í Íran. „Við skorum á írönsku stjórnina að binda enda á kúgun sína á tjáningarfrelsi – og binda enda á áframhaldandi áreitni og mismunun gegn konum,“ skrifar Trudeau á Twitter. Ekki stóð á viðbrögðum Kanadamanna o.fl. í svörum undir færslunni. … Read More
Pútín gefur í og kveður fleiri í herinn
Vladimír Pútín Rússlandsforseti gaf út herkvaðningu að hluta frá og með deginum í dag, í ávarpi til þjóðar sinnar í morgun. Frá því greinir Russia Today í dag. Ástæðuna kvað hann m.a. vera að hin sérlega hernaðaraðgerð Rússlands í Úkraínu og Donbass hafi dregist á langinn. Auk þess kvað hann Rússland þurfa að mæta „stríðsmaskínu Vesturlanda í heild sinni“ í … Read More
SCO leiðtogafundurinn og þörfin fyrir nýja hnattræna öryggisstefnu
Þýdd grein eftir Matthew Ehret, blaðamann, fyrirlesara og stofnanda Canadian Patriot Review. Birtist hjá veftímaritinu Stratetic Culture þann 18. september 2022. Þýðandi Erna Ýr Öldudóttir. Klukkan tifar hratt og ef við missum af tækifærinu nú, gæti langur kjarnorkuvetur fylgt eina friðnum sem heimurinn má vænta. Pútín og Xi hittust á nýafstöðnum leiðtogafundi Shanghai-stofnunarinnar (e. Shanghai Cooperation Organisation, SCO) í Samarkand [í … Read More