Eru Hlédís og Gunnar þau einu sem halda stillingu sinni í fósturvísamálinu?

Gústaf SkúlasonFósturvísamálið, Innlendar4 Comments

Það verður að segjast, að hjónin Hlédís Sveinsdóttir og Gunnar Árnason eru klippt og skorin hvort fyrir annað. Miðað við allt sem gengið hefur á í kringum þau í samfélaginu í tilraun til að knésetja þau, fá þau til að skilja og týna tilganginum með lífinu, þá halda þau rósemi sinni og mæla af skynsemi og vísa til staðreynda í svo kölluðu fósturvísamáli. Engu er líkar en að þau hafi stigið á snákabú með einfaldri fyrirspurn til lækna sem þau treystu fyrir sínum innstu persónulegu málefnum, að fá aðstoð við að eignast barn. Lætin hafa verið þvílík til að þagga niður í þeim og fá þau til að hætta að leita sannleikans, að í raun er hægt að fullyrða að þau hafi sjálf orðið fyrir umsáturseinelti í stað skjólstæðinga tæknifrjóvgunarfyrirtækisins sem með aðstoð lögreglunnar hefur tvívegis sett þau hjón í nálgunarbann við fólk sem þau þekkja ekki neitt. Ástæðan: þau báðu um samstarf til að finna svar við því, hvort það gæti verið að „týndu fósturvísarnir“  hefðu ekki týnst heldur hefðu af misgáningi eða gegnum meðvitaða sölu farið til annarra einstaklinga.

Forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar heldur að geðlyf kæfi spurninguna

Þau hafa verið látin sitja ein uppi með efann en sterkir aðilar eins og Landsspítalinn, Persónuvernd, eftirlitsnefnd með rafrænum skráningum, Héraðssaksóknari og jafnvel lögreglan sjálf hafa yfirheyrt sig sjálf og komist að þeirri niðurstöðu – eins og Kári Stefánsson forstjóri Íslenskrar Erfðagreiningar sagði, að Hlédís og Gunnar „þyrftu að taka geðlyf“ til að verða betri manneskjur. Samfara uppgötvunarferð þeirra hjóna að koma alls staðar að lokuðum dyrum, þá hafa óvandaðir löglærðir dreift lygasögum um þau og veifað lagagreinum um uppreisn gegn ríkinu!

Hvað er undir þessum ofstopa og upphrópunum sem eru úr öllu sambandi við eðlilega og einfalda eftirgrennslan þeirra hjóna sem spyrja hvað varð um hina 19 fósturvísa?

Allt reynt til að fá hjónin til að gefast upp og skilja

Úldinn fiskur hengdur á útidyr á heimili Hlédísar og Gunnars.

Í þættinum í dag segja þau frá ofsóknum sem þau hafa þurft að þola, með umsátursheimsóknum einstaklinga sem sett hafa úldinn fisk á lóð þeirra, sett fiskiker fyrir framan bílinn þeirra, dreift illa lyktandi fiski fyrir utan sorptunnuna og hengt úldinn fisk í plastpoka á útidyrahurðina. Hringingar, fólk sem kom og starði á húsið og kíkti gegnum glugga. Sem betur fer hefur þessum ósköpum hætt en það er bara hægt að ímynda sér, hvernig Hlédísi og Gunnari hefur liðið þennan tíma. Skýringin gæti vel verið sú, að ef hjón sem hafa búið til fósturvísa skilja, þá leyfa lögin að tæknifrjóvgunarfyrirtækið geti fargað lifandi vísum og lokað skýrslum um málið. Sem betur fer stóðst samband hjónanna þessar árásir. Spurningin er hvað verður um samtrygginguna um hið dularfulla hvarf fósturvísanna 19.

Á myndbandinu hér að neðan náðist maður sem hafði fyrir því að frakta grill og draga að heimili hjónanna.

Leysir ekki læknana undan ábyrgð að skipta um fyrirtækjanafn

Tæknifrjóvgunarfyrirtækið Art Medica sem þau snéru sér til og treystu fyrir möguleikum til að eignast barn, sveik umsamin samning og braut lög um meðferð eggjatöku og fósturvísa. Þegar þau voru í meðferðinni höfðu þau enga hugmynd um það heldur gengu út frá því sem vísu að allt væri í lagi. 10-12 árum síðar og fyrst eftir upplýsingar um sjúklega afbrigðilegan áhuga á sjúkraskrám Hlédísar í janúar 2015 og gríðarlegum fjölda innbrota í sjúkraskrár hennar, þá ákváðu þau að grennslast einnig eftir sjúkraskrám frá Art Medica sem þau fengu í janúar 2022 um tveimur árum eftir seinni skýrslu Landsspítalans.

 

Loforð á heimasíðu Art Medica áður en fyrirtækið skipti um nafn til Livio Reykjavik.

Við yfirferð sjúkraskrár Art Medica kom í ljós umfram eggjataka og myndun fósturvísa sem voru í hrópandi ósamræmi við þarfir hjónanna að eignast eitt eða tvö börn samkvæmt samkomulagi við Art Medica. Kom í ljós að um 50 egg voru tekin og 29 fósturvísar skapaðir en þau fengu einungis 10 af fósturvísunum til sín. Art Medica braut lög um tilkynningu og samráð við hjónin sem ekki voru látin vita um hina stórfelldu fósturvísaframleiðslu þau þrjú ár sem meðferðin tók. Þegar hjónin spurðust fyrir var lítið um svör eins og kemur fram í þættinum hér að neðan.

Tilviljanar sem hrannast hafa upp samfara leit þeirra að svari við því, hvað varð um fósturvísana eru margvíslegar og í raun of margar og í heildina of einsleitar til að hægt sé að útiloka grun um meðvitaðan ásetning. Varðar það mörg merkileg utanaðkomandi atvik og afskipti og einnig fjárhagslega þróun tæknifrjóvgunarfyrirtækisins og sölu til Livio AB Sverige sem síðan var selt til tækni frjóvgunarrisa í Evrópu.

Það voru góð tíðindi að lögreglan dró til baka hótun um þriðja nálgunarbannið og einnig gagnvart Halli Hallssyni blaðamanni, sem reyna átti að þagga niður. Hvort þessi breyting er undantekning frá ofstopanum á eftir að koma í ljós en Gunnar sagðist trúa á hið góða og þau munu halda áfram að leita réttar síns sem þau eiga samkvæmt lögum en svo fáir virðast vilja hlýða á landinu okkar góða. Umboðsmaður Alþingis er eini aðilinn sem sýnir lit. Það verður áhugavert að fylgjast með svari landlæknis.

4 Comments on “Eru Hlédís og Gunnar þau einu sem halda stillingu sinni í fósturvísamálinu?”

  1. Hvað er eigninlega að sumu fólki að setja úldinn fisk á lóð þeirra, sett fiskiker fyrir framan bílinn þeirra, dreift illa lyktandi fiski fyrir utan sorptunnuna og hengt úldinn fisk í plastpoka á útidyrahurðina. Hringingar, fólk sem kom og starði á húsið og kíkti gegnum glugga?????Það væri mjög gott ef að þetta fólk tileinkaði sér eftirfarandi,,,komdu fram við aðra eins og þú villt láta koma fram við þig,,,

  2. Þetta er grafalvarlegt sakamál sem þarf að rannsaka til hlítar af hlutlausu utanaðkomandi fagfólki – ekki Íslendingum
    Hér þekkja allir einhvern og tengslin eru víða

    Þetta mál mun ekki upplýsast fyrr en að undangengnum erfðarannsóknum hjá öllum viðkomandi aðilum

  3. Art Medica er alþjóðlegt fyrirtæki með höfuðstöðvar sínar í Bandaríkjunum ef ég skil það rétt. Hlédís og Gunnar ættu að skoða að stefna fyrirtækinu fyrir bandarískan dómstól því það er augljóst að hjónin fá ekkert réttlæti á þessu banana skeri. Landið er bara of spillt þvi miður.

  4. Furðulegt að umræddir forldrar leyfi ekki dna sýni. Dna sýni er tekið af munnvatni viðkomandi og skaðar ekki nokkurn mann. Vonandi fá þessi ágætu hjón úrlausn sinna mála í íslensku réttarkerfi.

Skildu eftir skilaboð