Elon Musk, einn ríkasti maður heims og eigandi Tesla, Space X og samfélagsmiðilsins X var í ítarlegu viðtali við Jordan Peterson í gærkvöld. Elon lýsti þar sorg sinni er hann missti son sinn yfir til kynjaköltsins.
Blekktur í miðju Covid-fári
Elon segir að hann hafi verið blekktur á meðan mikil ringulreið ríkti vegna heimsfaraldursins. Honum var talin trú að sonur hans myndi fremja sjálfsvíg ef hann skrifaði ekki undir skjöl sem heimiluðu læknum að ávísa kynþroskabælandi lyfjum til hans. Lyf sem m.a. eru notuð til þess að gelda kynferðisafbrotamenn og gerðu son hans ófrjóan.
Woke heilavírusinn drap son minn
Musk er harðorður og ákveðinn þegar hann segir að hinn svokallaði „woke“ heilavírus hafi drepið son sinn. ,,Þau kalla þetta ekki „dead-naming“ (dauðnefni) af ástæðulausu. Xavier minn er dáinn! ,,Eftir þetta sór ég þess eið að tortíma þessum woke heilavírus. Og okkur miðar áfram!“
Kallar eftir ákærum og fangelsisrefsingum
Elon heldur áfram og segir að allt það fólk sem hafi haldið þessu að fólki (e. promote) þarf að vera dregið til ábyrgðar og eigi heima á bak við lás og slá.
Sjá stilku með íslenskum texta í X færslu formanns Samtakanna 22
Átakanleg frásögn @elonmusk
Átakanleg frásögn Elon Musk sem var blekktur i miðju COVID-fári að skrifa undir skjöl sem heimiluðu kuklurum að gelda son hans með kynþroskabælandi lyfjum.Hann kallar eftir því að heilbrigðisstarfsfólk og þeir sem halda þessu að börnum verði sótt… pic.twitter.com/FCZR0vXdY8
— Eldur – The Icelandic Gay Guy (Agent #50067) (@justgayice) July 23, 2024
Allt viðtalið má sjá hér
My conversation with @elonmusk. Live today at 3pm ET. https://t.co/RyaZFmvC8i
— Dr Jordan B Peterson (@jordanbpeterson) July 22, 2024
One Comment on “Elon Musk: Ég missti son minn!”
Já tja kanski hann sé rétti einstaklingunum sem nær að vekja fólk upp hér á landi?
Datt inn á mennta spjallið á útvarpi sögu þar er farið víða hvað þetta snertir.