„Covid efnið var hannað til að fækka mannkyninu“ uppfinningamaður efnisins leysir frá skjóðunni

frettinCovid bóluefni, Erlent15 Comments

„Covid bóluefnið var hannað til að fækka mannkyninu og eyðileggja heiminn“, að sögn uppfinningamanns Covid bóluefnis sem kemur fá Oxford háskóla. Uppfinningamaðurinn á bak við efnið hefur nú ákveðið að stíga fram og afhjúpar hann dagskrá elítunnar á bak við tjöldin, fjallað er um málið á The peoples voice:

„Á meðan meginstraumsfjölmiðlar halda áfram að þjóna herrum sínum og bæla niður sannleikann, hafa háttsettir uppljóstrarar stigið fram og leyst frá skjóðunni um það sem raunverulega var að gerast á bak við tjöldin, meðan á heimsfaraldurinu stóð.“

Eftir Baxter Dmitry*

Prófessor Sir John Bell, uppfinningarmaður Oxford bóluefnisins, hefur nú afhjúpað raunverulegan tilgang mRNA bólusetninganna sem voru kynnt og dreift af mönnum eins og Anthony Fauci og Bill Gates og dreift til milljarða manna um allan heim, margir þar af fengu skipanir til að láta bólusetja sig af einræðisstjórnum sínum.

Í að því er virðist venjubundnu viðtali í bresku sjónvarpi, hefur prófessor Bell leyst frá skjóðunni opinberlega og staðfestir það sem mörg okkar hafa vitað allan tímann.

„Það er rétt - það er allt of mikið af fólki í heiminum og bóluefnin voru hönnuð til að drepa fólkið og eyðileggja heiminn að því marki sem elíturnar sætta sig við.“

Samkvæmt Bell eru Covid bóluefnin í því ferli að „fækka mannkyni um 60 til 70% jarðarbúa.“

Augnablikið er súrrealískt þegar Bell leysir frá skjóðunni, óvitandi um að hann sé í beinni útsendingu, þar mætir hann algjörum skelfingarsvip í andliti kollega síns. „Útsendingin var stytt, prófessor Bell mun aldrei fá að koma fram á almennum fjölmiðlum aftur, en skaðinn er skeður,“ segir heimildarmaður.

Hin átakanlega uppljóstrun hefur vakið reiði og ótta um allan heim.

Það hefur líka sannað að svokallaðir „samsæriskenningasmiðir“ hafi haft rétt fyrir sér... Enn og aftur.

Þó að almennir fjölmiðlar haldi áfram að afneita því sem flest okkar sjáum fyrir augum okkar, þá fer jarðarbúum að fækka þegar ófrjósemisherferðin tekur við.

Spáð er að Grikkland verði fyrsta þjóðin til að þjást af „fólksfækkun“ þar sem skyndileg og óvænt dauðsföll halda áfram að aukast um alla þjóðina á meðan frjósemishlutfall hefur fallið niður í lægri stig en sérfræðingar höfðu áður talið mögulegt.

Það er engin tilviljun að Grikkland var af ströngustu löndum heims þegar kom að því að krefjast bólusetningar og refsa þeim sem neituðu.

Þú veist hvað þeir segja. Bólusetningar eru helsta orsök tilviljana.

Á sama tíma, í næstum því fullbólusettu landi eins og Ástralíu, hafa hjartaáföll náð hærri tíðni en nokkru sinni fyrr.

Kannski er þetta ástæðan fyrir því í þessari viku að ástralska ríkisstjórnin klippti út hvert einasta orð á hverri einustu síðu í langþráðri skýrslu um lotupróf á Covid mRNA bóluefninu sem þau létu almenningi í té, sem afhjúpar hjartaáföll hjá mjög ungum börnum.

Ungbarnadauði nær nýjum hæðum

Hjartaáföll og dauðhreinsun íbúa eru aðeins toppurinn á ísjakanum þegar kemur að aðferðum sem elítan beitir til að ná yfirlýstu markmiði sínu um mikla fólksfækkun.

Nýjustu tölur frá CDC sýna að önnur aðferð felur í sér að drepa nýfædd börn.

Ungbarnadauði í Bandaríkjunum hækkaði í kjölfar Covid bóluefnisins, samkvæmt gögnum sem gefin voru út af US Centers for Disease Control and Prevention (CDC) í vikunni.

Ungbarnadauði er einn mikilvægasti mælikvarðinn sem við höfum og hefur farið lækkandi ár frá ári í Bandaríkjunum síðan stöðugar mælingar hófust árið 1995.

En ungbarnadauði frá 2022, einu ári eftir að bóluefnið var sett á laggirnar, var mjög áberandi og kom vísindamönnum og heilbrigðisstarfsfólki í opna skjöldu.

Amanda Jean Stevenson, lýðfræðingur og lektor í félagsfræði við háskólann í Colorado Boulder, sá gögnin sem CDC gaf út og var skelfingu lostin yfir niðurstöðunum.

Hún sagði: „Við þurfum að sjá þessar tölur lækka - og hratt - því þær eru allt of háar.

Big Pharma og hnattræna yfirstéttin

Hún hefur ekki rangt fyrir sér. En svo lengi sem stórveldin sem eru eru síast inn og spillt af Big Pharma og hnattrænu yfirstéttinni, munum við ekki sjá neinar framfarir.

En íbúar heimsins eru að vakna til vitundar um hið spillta kerfi og sprungur eru að myndast í múr þagnarinnar sem samsekir meginstraumsfjölmiðlar hafa smíðað.

Þýskaland hefur verið uppspretta röð sprengjuuppljóstrana undanfarna mánuði sem hafa algerlega afsannað opinbera frásögn sem alheimselítan hélt fram um Covid-faraldurinn.

Órituð ríkisstjórnarskjöl, sem lekið var í vikunni, leiddu í ljós að þýsk stjórnvöld vissu að Covid-19 mRNA bóluefnin væru algjörlega gagnslaus til að vernda gegn Covid áður en þau komu þeim út til tugmilljóna borgara. En það versnar enn meir. Ríkisstjórnin vissi líka að þau voru banvæn. Svo hvers vegna dreifðu þeir þessum banvænu efnum til síns eigin fólks?

Samkvæmt skjölum stjórnvalda voru þeir undir þrýstingi frá Pfizer og lykilmönnum á heimsvísu, þar á meðal Bill Gates og Klaus Schwab.

Afsökunarbeiðni dugar ekki

Nú rís fólkið upp og krefst þess að stjórnvöld gefi út formlega afsökunarbeiðni á glæpum sínum meðan á heimsfaraldri stóð.

Miðað við alvarleika glæpa gegn mannkyni sem framdir voru við heimsfaraldurinn, dugar ekki afsökunarbeiðni.

Samkvæmt eigin gögnum þýskra stjórnvalda var alls enginn heimsfaraldur - bara þétt samsett sálfræðirannsókn á hernaðargráðu til að heilaþvo fjöldann til að samþykkja tilraunabóluefni með hörmulegum afleiðingum.

Paul Schreyer og tímaritið Multipolar hófu beiðni um upplýsingafrelsi og síðan málsókn gegn þýskum stjórnvöldum til að þvinga þau til að birta leyniskjölin.

Eins og prófessor Steven Homburg útskýrir, eru niðurstöðurnar ófrávíkjanlegar og tákna algjöra réttlætingu fyrir alla sem efuðust um heimsfaraldurinn, lokanir, grímur og bólusetningarherferð.

Þessar staðreyndir eru vítaverðar og sanna að opinbera frásögnin um Covid, ýtt af ríkisstjórnum heimsins og almennum fjölmiðlum, eru algjör svik og glæpur gegn mannkyni.

Heimild.

Umfjöllun og viðtal við prófessorinn má sjá hér neðar:

15 Comments on “„Covid efnið var hannað til að fækka mannkyninu“ uppfinningamaður efnisins leysir frá skjóðunni”

  1. Já þetta er allt að koma upp, guði sè lof. Nú þarf að fara í að handtaka þá sem að þessu stóðu og þeir eiga allir skilið dauðarefsingu.
    WHO liðið þarf að fara í gasklefann líka..Tedros er mikill hryðjuverkamaður..Allir stjórnmálamennirnir / læknarnir sem vissu sannleikann….já bara allir sem vissu hann, inn í klefann líka. Nú þurfa allir að fara í MRNA detox. Guðmundur Karl Snæbjörnsson ( Kalli Snæ) læknir er með þá uppskrift á síðunni sinni. Við vissum það þó nokkur að þetta var Glæpur Gegn Mannkyni!! Við gerðum okkar besta en á okkur var ekki hlustað fyrr en seint! Hversu sorglegt 🤬🤬🤬🤬🤬

  2. Ég hvatti marga til að læra sálm 91 utanbókar og sleppa þessu sprautu covid bulli. Hvet alla til að sleppa öllum bóluefnum. Sálmur 91 virkar betur en öll þessi töfralyf sem lyfjarisarnir selja okkur. Fyrir Hans benjar erum við heil. Treystum Guði, trúum á Jesú Krist og verkið Hans og leiðumst áfram af Helgum Anda.

  3. Eins mikið og ég var á móti mikið af þessari hjarðhegðun í kringum bóluefnin þá verð ég að útskýra fyrir þeim sem halda að hér sé höfundur bóluefnana að halda því fram að Astra Zenega hafi verið hannað til þess að gelda mannfjöldan.

    í bóluefnafræði er talað um að „sterilisera“ mannfjöldan þannig að vírusinn nái ekki a fjölga sér, Það er að segja hér er höfundurinn að segja að bóluefnið sterilizeri 60% af þeim sem eru bólusettir. Það er að segja að vírusinn barnist ekki (smiti ekki )í gegnum 60% af þeim sem eru bólusettir.

    Burt sé frá þessum misskilning, þá er það alveg ljóst að betra hefði verið að gefa engum þessi bóluefni.

  4. Þetta er eins og að lesa hugrenningar geðsjúklings eitt allra mesta bull sem ég hef lesið enginn maður með gáfur yfir meðallagi myndi taka inna sig. Lesið tetta aftur þessi miðil er algerlega búinn að skita upp a bak og er greinilega fyrir fólk sem étur upp paranoiu samsæriskenningar. Hvar eru heimildir ég meina hbað er þetta þetta er allavega ekki frétt þetta er PURA FANTASÍU HEIMSKA.

  5. Ungbarnadauði fra 2011 til dagsins í dag í USA. þessi frétt er hreinn uppspuni. Og fólksfækkun hefur verið staðreynd í öllum vestrænum rikjum og mun aukast verst i suður kóreu og japan. Þetta er tilkomið þar sem konur hafa áhúga a meirru en að punga út lagmark 3 ungum til að halda í fólksfjölgun það þarf lágmark 2.1 barn til viðhalda og að auki er það efnhagsleg byrði a fjólskyldur.

    2024 5.342 -2.520%
    2023 5.480 -1.210%
    2022 5.547 -1.190%
    2021 5.614 -1.180%
    2020 5.681 -1.170%
    2019 5.748 -1.150%
    2018 5.815 -0.500%
    2017 5.844 -0.490%
    2016 5.873 -0.470%
    2015 5.901 -0.490%
    2014 5.930 -0.490%
    2013 5.959 -2.690%
    2012 6.124 -2.620%
    2011 6.289 -2.560%

  6. Þvílíkt rugl! Ekkert viðtal við þennan prófessor John Bell. Bara verið að æra ruglið uppúr vitleysingum.

  7. Sorglegt að enn sé fólk að réttlæta hin svokölluðu ´bóluefni´. Þau hafa reynst mörgum banvæn, og fjölmargir hafa hlotið varanlegan skaða af þeim. Þau hafa ekki heldur veitt þá vörn sem lofað var í byrjun. Allur heimurinn er enn þá að kljást við þann gífurlega kostnað sem þau ollu efnahagslífinu og heilbrigðiskerfinu.

  8. Eins slæm og þessi „bóluefni“ eru, þá er þarna búið að manipulata þetta viðtal sem er frá því í ágúst 2020 og verið að ræða „sterilizing iimmunity“ á þeim tíma sem var verið að bíða samþykkis fyrir efninu. Það vantar framan á viðtalið þar sem prófessorinn nefnir „infection og protection“ og í lokin þar sem hann bætir við varðandi eftirlitið. Þarna er ekki verið að tala um að gelda mannskapinn, þó svo að fólk hafi glímt við ófrjósemi eftir sprauturnar, en það er önnur saga.

    Hér er linkur á viðtalið sem er aðeins lengra en þetta sem fylgir.

    https://x.com/occult_agenda/status/1649989065964388353

  9. Það má ekki heldur gleyma að fólk var þvingað til að láta sprauta sig með þessu ´bóluefni´. Og þeir sem gerðu það ekki voru útskúfaðir og fyrirlitnir.

  10. Það eru alveg nægilega mikið af gögnum til, sem sanna að jarðarbúum skuli fækkað. En það sem er vest við þessa ,,kjaftasögu“ er sú staðreynd að öflin vilja að hvíta fólkinu fækki sem fyrst. Kannski partur af ,,kalergi“ plan ?

  11. Þetta stafar af því að orð þessa virta læknis voru mistúlkuð og sett inn í lygavef þessa miðils „The People’s Voice“. Hann sagði í viðtalinu að „líklegt væri að bóluefnið myndi ekki alveg sterilisera þjóðirnar, líklega um 60-70%“, þ.e. það myndi ekki ná að koma í veg fyrir öll covid smit. Síðan er klippt á viðtalið af þessum miðli og orðin tekin úr samhengi. Það sést í þessu videoi sem hér er vísað í. Þetta var misnotað sem athugasemd um að bóluefnið næði ekki að gera allt mannfólk ófrjótt og í þessari rætnu frétt hjá þessu miðli sem FRÉTTIN hér gleypir við. Hér eru anti-vaxerar (eða hreinlega gráðugs fréttamiðils sem svífst einskis) misnotað nafn og orðstír þessa virta vísindamanns. Sjá umfjöllun um þetta hér. https://eu.usatoday.com/…/covid-19-vaccine…/72582359007/

  12. Fyrir utan lygina um merkingu orða John Bells (sjá ath. mína að ofan) þá er þessi fréttamennska hjá „The Peoples Voice“ dæmigerð fyrir gerð lygavefa um vísindaleg málefni. Fyrst eru orð Bells afskræmd og svo eru gripnar einhverjar illa gerðar fréttir héðan og þaðan úr heiminum um allskyns aukningu á dauðsföllum og notuð sem „sönnunargögn“. Síðan eru þeir sem eru að verja vísindin sagðir „gaslýsa“ fólk sem lýgur til um bóluefni. Allt þetta spilar inn á tilfinningar og drama sem sjokkerar fólk. Þessir lygarar eins og þessi fjölmiðlamaður (sem gefur ekki upp nafn sitt) hjá þessum miðli er ekki að reyna að koma með málefnalega umfjöllun, heldur spila á tilfinningar fólk og traust þess til fjölmiðla almennt. Hann spilar á þá viðteknu tilfinningu fólks að treysta þeim sem virðast vera að koma upp um „svikara“ og vernda almenning. Lygaranar eru svo yfirgengilegar að fólki dettur ekki í hug í fyrstu að það sé verið að ljúga að því. Ofan við „fréttina“ segir „Fact Checked by the People’s Voice Community“. Hvað segir þetta? Ekki neitt. Þetta Community er ekki ráð vísindafólks. Þetta er aðferð til að skapa falskan trúverðugleika. Engin trúverðug fagmanneskja myndi flytja mál sitt með þessum lævísa tón, tilfinningamennsku og algeru tillitsleysi við vísindaleg vinnubrögð, eins og sjá má í videoí neðan við „fréttina“. Þetta er lævíslega útbúinn lygavefur.

Skildu eftir skilaboð