Hægri eða vinstri, fullveldi eða ESB

frettinInnlent, StjórnmálLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Línur skýrast fyrir þingkosningarnar eftir fjóra daga. Margir flokkar eru í boði en valkostir aðeins tveir. Vinstristjórn eða hægristjórn.

Vinstriflokkarnir, Samfylking og Viðreisn í fararbroddi, boða ríkisstjórn með ESB-aðild Íslands á dagskrá.

Tilfallandi hefur áður útskýrt hvers vegna ESB-aðild er glapræði:

Síðast þegar reynt var að véla Ísland inn í ESB, í tíð vinstristjórnar Jóhönnu Sig. 2009-2013, logaði samfélagið í ófriði. Tvennt kom til, afleiðingar hrunsins annars vegar og hins vegar ESB-umsóknin sem vinstristjórnin sendi til Brussel sumarið 2009.

Langsótt var að Ísland yrði ESB-ríki fyrir fimmtán árum. Evrópusambandið er félagsskapur meginlandsríkja Evrópu. Ísland er eyríki á miðju Atlantshafi. Eftir að Bretland gekk úr ESB, með Brexit 2016, varð enn fjarlægara að Ísland ætti erindi í félagsskapinn. [...]

Hagsmunum Íslands er best borgið fjarri þeirri orrahríð sem fyrirsjáanleg er næstu ár og áratugi í Evrópu. Ekki eigum við aðild að átökunum og engir lífsnauðsynlegir hagsmunir Íslands eru þar í húfi.

Þeir sem greiða vinstriflokkunum atkvæði sitt á laugardag skrifa upp á nöturlega framtíðarsýn fullveldisframsals inn í ESB-óreiðu.

Best er að kjósa til hægri.

Skildu eftir skilaboð