Dómstólar baki ríkinu ekki bótaskyldu

frettinDómsmál, InnlentLeave a Comment

Fréttatilkynning:

Hagsmunasamtök heimilanna fagna áliti EFTA dómstólsins um túlkun á þeim reglum sem gilda um lánaskilmála sem kveða á um breytilega vexti. Þó að um álit sé að ræða verða íslenskir dómstólar að fylgja því, enda geta þeir annars gert íslenska ríkið bótaskylt.

Hagsmunasamtök heimilanna leggja áherslu á að:

  • Álitið gefur afdráttalaust til kynna að umræddir skilmálar séu óréttmætir.
  • Lánveitendur sem sömdu hina óréttmætu skilmála bera sjálfir ábyrgð á því.
  • Óréttmætum skilmálum skal víkja til hliðar en samningarnir gilda að öðru leyti án breytinga.
  • Lánveitendum ber að endurgreiða með dráttarvöxtum allt fé sem þeir hafa oftekið á grundvelli óréttmætra skilmála, umfram þá vexti sem komu fram í samningi frá upphafi.
  • Endurkröfuréttur neytenda skal gilda að minnsta kosti jafn lengi og samningarnir.
  • Hafi neytandi einhverntíma greitt lægri vexti en upphaflega komu fram í samningi skal fullnaðarkvittun gilda.

Því miður hefur sagan sýnt að þegar fjármálafyrirtæki brjóta á réttindum neytenda, virðast dómstólar leita allra leiða til að leysa þá undan ábyrgð. Hagsmunasamtök heimilanna ítreka því að slík háttsemi getur bakað ríkinu bótaskyldu á kostnað almennings. Samtökin vonast til þess að nú muni dómstólar aðeins dæma eftir lögunum með rétt neytenda í fyrirrúmi eins og þeim ber skylda til.

Hagsmunasamtök heimilanna minna einnig á að árið 2010 var dómsmáli um lán með ólögmætum skilmálum veitt flýtimeðferð og sett Íslandsmet í málshraða. Frá þingfestingu málsins í héraði liðu aðeins 79 dagar þar til dómur Hæstaréttar Íslands lá fyrir. Sá mikli flýtir var sagður nauðsynlegur vegna „almannahagsmuna" og "til að eyða óvissu". 

Sambærileg flýtimeðferð fyrir dómstólum hlýtur að vera nauðsynleg núna enda eru gríðarlegir almannahagsmunir í húfi og brýnt að eyða allri óvissu um lögmæti skilmála um breytilega vexti í lánum til íslenskra neytenda.

Hagsmunasamtök heimilanna

Skildu eftir skilaboð