Þegar við látum hjörtu okkar ráða munum við aldrei tapa

frettinInnlent, TónlistLeave a Comment

Nýlega gáfu tónlistarmennirnir Svavar Viðarsson og Magni út nýja lagið sitt "Aðeins eitt." Lagið er hvetjandi lag sem fjallar um að sleppa takinu á fortíðinni, umfaðma hamingjuna í núinu og horfa fram á við. Með hrífandi texta undirstrikar lagið fegurð þess að deila bæði brosi og tárum og minnir okkur á að þegar við látum hjörtu okkar ráða munum við aldrei tapa. Lífið er of stutt fyrir eitthvað minna.

Aðeins eitt“ er annað samstarfsverkefni Svavars og Magna, eftir útgáfuna "Ekkert hefur breyst" sem kom út í  fyrrasumar og hlaut sæti á vinsældarlista Rásar 2.

Á bak við lagið ,,Aðeins eitt‘’ er hæfileikaríka tónlistarfólkið Svavar Viðarsson (Lag, texti og útsetningar), Magni Ásgeirsson (Söngur), Vignir Snær Vigfússon (Rafmagns- og kassagítar, útsetningar, upptökustjórn og hljóðblöndun), Benedikt Brynleifsson (Trommur), Helgi Reynir Jónsson (Hljómborð), Erna Hrönn Ólafsdóttir (Bakraddir) og Skonrokk Studios/Sigurdór Guðmundsson (Hljómjöfnun).

Lagið "Aðeins eitt" er því nú aðgengilegt á streymisveitum og er hér komið til að veita þér innblástur og gleði inn í daginn þinn.

Skildu eftir skilaboð