Játar Stefán vitneskju sína fyrir lögreglu?

frettinFjölmiðlar, Innlent, Páll VilhjálmssonLeave a Comment

Páll Vilhjálmsson skrifar:

Þóra Arnórsdóttir ritstjóri Kveiks frá stofnun lét skyndilega af störfum 6. febrúar á síðasta ári. Engar skýringar voru gefnar á brotthvarfi fyrrum forsetaframbjóðanda og starfsmanni RÚV til 25 ára, aðeins fáorð fréttatilkynning.

Í bloggi í fyrra setti tilfallandi málið í samhengi:

Stefán fékk upplýsingabeiðni frá lögreglu 4. janúar [2023] um símanúmerið 680 2140. Stefán svaraði með tölvupósti 11. janúar. Hann hafði fengið aðstoð lögfræðings og komist að þeirri niðurstöðu að upplýsingar yrðu ekki veittar. Niðurlag tölvupósts útvarpsstjóra er eftirfarandi: ,,Þegar af þessum ástæðum er ekki unnt að fallast á upplýsingabeiðnina, enda uppfyllir hún að okkar mati ekki lagaskilyrði."

Daginn eftir hafði Stefáni snúist hugur. Í tölvupósti 12. janúar sagði hann símann notaðan af Kveik og að Þóra Arnórsdóttir gæfi upplýsingar ,,munnlega" um notkun símans.

Nærri má geta að samtal fór fram á milli Stefáns og Þóru áður en brátt varð um hana á Efstaleiti. Þóra keypti Samsung síma í apríl 2021 og skráði á hann númerið 680 2140. Síminn er sömu gerðar og sími Páls skipstjóra Steingrímssonar sem hefur númerið 680 214X. Páli var byrlað nokkrum dögum eftir símakaup Þóru. Á meðan skipstjóranum var tæplega hugað líf á gjörgæslu stal þáverandi eignkona hans símanum og fór með tækið á Efstaleiti til afritunar. Þar var unnið með gögn úr símanum og þau send til birtingar á Kjarnann og Stundina, sem nú heita Heimildin.

Þóra fékk stöðu sakbornings í byrlunar- og símastuldsmálinu þegar í febrúar 2022. Áfram starfaði hún á RÚV, sem ritstjóri Kveiks. En þrem vikum eftir að símakaup Þóru vitnuðust, í janúar 2023, tók hún pokann sinn á Efstaleiti. Í samtali Þóru og útvarpsstjóra hafa komið fram efnisatriði sem skipta máli við lögreglurannsókn.

Augljóst er að Stefán útvarpsstjóri veit heilmikið um byrlunar- og símastuldsmálið. En hefur hann farið með þær upplýsingar til lögreglu sem leitast við að upplýsa málsatvik? Spurningin er brýn enda á opinber stofnun í hlut og Stefán er embættismaður ríkisins. Starfsskylda embættismanna er að upplýsa lögreglu um málsatvik í sakamáli. Spurningin verður enn brýnni í ljósi reglna sem útvarpsstjóri gaf út í vor, og sagt var frá í bloggi gærdagsins. Í fyrstu grein reglnanna segir:

Markmið reglnanna er að stuðla að því að upplýst verði um lögbrot og aðra ámælisverða háttsemi í starfsemi RÚV.

Yfir til þín, Stefán.

Skildu eftir skilaboð